Óhult.is

Þinn leiðbeinandi í gegnum óvissu Virkar án nets · Vistað á tækinu
112 Neyðarlínan
Öll neyðarnúmer
Þrep0 Byrjun 0% Prenta efnið — til að eiga á pappír
Heimilið

Gátlisti yfir nauðsynjar

Það sem heimilið þarf til að komast af í að minnsta kosti þrjá daga — í rafmagnsleysi, vatnsleysi eða þegar ekki er hægt að komast í verslun. Byggt á gátlista Almannavarna.

0%
Næsta skref: neyðarplanið →

Staðan vistast í þessu tæki.

Heim

Heimilið

Er heimilið tilbúið? Þrjú skref: eiga það sem þarf, ákveða hvað þið gerið, og koma planinu á pappír.

Grunnurinn eftir flokkum

0%
  • Birgðir og nauðsynjar
  • Hreinlætisvörur
  • Öryggi, ljós og orka

Allt á þessu svæði vistast í þessu tæki.

Heimilið

Neyðarplan heimilisins

Allt á þessari síðu vistast aðeins í þessu tæki — ekkert sendist neitt og ekkert fylgir hlekknum á appið.

Það sem ég legg til

Búnaður og aðstaða umfram gátlistann — veldu flokk og skráðu hlutinn. Flokkarnir draga auðlindirnar saman sem heild: útilegubúnaðurinn, veiðibúnaðurinn, farartækin.

Færni og réttindi tilheyra þér, ekki heimilinu: skráðu þau sem færnimerki.

    Bættu við búnaði sem þú ert með umfram grunninn

    Staðsetningar

    Worst-case tímalínan mín

    Hvað gerir þú ef ástand varir og ekkert samband næst? Sá sem þekkir planið þitt þarf ekki símtal.

    Næsta skref: samantekt og PDF →

    Vistun er í vafra þessa tækis. Deiling með öðrum — ef hún kemur síðar — verður alltaf handvirk ákvörðun þín, aldrei sjálfvirk.

    Heimilið

    Samantekt plansins

    Lifandi samantekt — uppfærist í hvert sinn sem síðan opnast. Taktu skjáskot eða afritaðu textann og vistaðu/sendu hvert sem þú vilt.

    Planið verður til í þessu tæki og fer hvergi nema þú sendir það sjálfur.

    Heim

    Aðgangur

    Óhult virkar að fullu án innskráningar — allt efni, gátlistinn, neyðarplanið og þrepin vistast í þessu tæki. Account bætir við afriti og tengingum — hann verður aldrei skilyrði fyrir notkun.

    Frír account

    Innskráning mun aldrei krefjast nets til að opna appið — síminn man þig og sýnir staðbundna eintakið strax, líka í rafmagns- eða fjarskiptarofi.

    • Afrit af plani og þrepastöðu — lifir af tækjaskipti og hreinsun vafra
    • Sama staða á fleiri en einu tæki
    • Deiling plansins með einum vini
    • Færnimerki, vinir og teymi — án fjöldatakmarka
    • Áminningar um endurstaðfestingu (vatn, hleðslubankar, æfing)

    Áskrift Væntanlegt

    Lágt árgjald, greitt einu sinni á ári — engin mánaðaráskrift.

    • Fleiri en einn vinur í hringnum
    • Skráning og áminningar fyrir þrep 4 og ofar
    • Yfirsýn: hverjir í hringnum mínum eru tilbúnir

    Þjónninn geymir aðeins dulkóðuð afrit af planinu — lyklarnir verða til og búa í tækjunum þínum.

    Aðgangur

    Búa til aðgang

    Netfang og lykilorð er allt sem þarf — engin kennitala, ekkert nafn nema þú viljir.

    Áttu aðgang? Skrá inn

    Afrit á þjóni eru dulkóðuð með lyklum sem verða til í tækinu þínu — þjónninn getur ekki lesið planið þitt.

    Aðgangur

    Staðfestu netfangið

    Við sendum staðfestingarhlekk á . Opnaðu póstinn og smelltu á hlekkinn — þá er aðgangurinn tilbúinn.

    Enginn póstur? Athugaðu ruslpóstmöppuna eða sendu hlekkinn aftur.

    Frumgerð — enginn þjónn tengdur enn: smella hér jafngildir hlekknum í póstinum.

    Aðgangur

    Skrá inn

    Innskráning þarf net í fyrsta sinn — eftir það man tækið þig og appið opnast alltaf, líka í sambandsleysi.

    Gleymt lykilorð? · Nýr hér? Búa til aðgang

    Skrá inn

    Gleymt lykilorð

    Sláðu inn netfangið þitt — við sendum hlekk til að velja nýtt lykilorð.

    Skrá inn

    Veldu nýtt lykilorð

    Nýja lykilorðið gildir á öllum tækjunum þínum. Gögnin í tækinu haldast óbreytt.

    Aðgangur

    Eyða aðgangi

    Þetta er endanlegt og tekur gildi strax.

    Þetta eyðist

    • Aðgangurinn og netfangið af þjóninum
    • Dulkóðuðu afritin af plani og stöðu
    • Tengingar við þá sem þú deilir með

    Þetta helst

    • Allt í þessu tæki: planið, gátlistinn og þrepastaðan
    • Appið sjálft — það virkar áfram án aðgangs

    Hætta við

    Heim

    A · Undirbúningur

    Almennur grunnur óháð atburði. Markmið: heimilið sjálfbjarga í þrjá sólarhringa hið minnsta.

    Prenta þennan hluta
    1. Vatn og matur

      Markmiðið er einfalt: heimilið á að geta borðað og drukkið í þrjá sólarhringa án verslunar, rafmagns og rennandi vatns. Þetta er viðmið Almannavarna, Rauða krossins og nágrannalandanna — ekki prepper-metnaður heldur lágmarkspúði sem léttir álagi af viðbragðsaðilum.

      Gerðu þetta

      1. Vatn: að lágmarki 3 lítrar á mann á dag til drykkjar og matargerðar = minnst 9 lítrar á mann. Geymdu í hreinum, lokuðum ílátum á svölum, dimmum stað. Keypt vatn í óopnuðum umbúðum geymist í um ár; brúsa sem þú fyllir sjálfur skaltu þrífa vel og endurnýja vatnið á um sex mánaða fresti.
      2. Vatn til annars: hreinlæti, salerni og gæludýr þurfa sitt. Nokkrir aukabrúsar af kranavatni kosta nánast ekkert.
      3. Matur: geymsluþolinn og orkuríkur matur sem þarf litla eða enga eldun — niðursuðuvörur, þurrmatur, hnetur, hafrar, súkkulaði. Veldu mat sem heimilið borðar í alvöru; neyðarbirgðir sem enginn vill eru sóun.
      4. Dósaopnari. Handvirkur. Dósir án opnara eru niðurlægjandi vandamál.
      5. Eldunaraðstaða án rafmagns: prímus eða gasgrill með fullum kút — notað utandyra.
      6. Sérþarfir: ungbarnamatur, sérfæði, fóður fyrir gæludýr. Þrír dagar fyrir þau líka.
      7. Hringrás: notaðu birgðirnar í daglegu lífi og kauptu jafnóðum inn í þær — þá er ekkert útrunnið þegar á reynir.

      → Hvað endist hve lengi og hvað „best fyrir“ þýðir í raun: sjá C10. Viltu lengri púða en þrjá daga: sjá A12.

    2. Rafmagn og ljós

      Rafmagnsleysi er ein algengasta röskunin á Íslandi — óveður sjá til þess. Undirbúningur snýst um þrennt: ljós, hleðslu og upplýsingaleið án rafmagns.

      Gerðu þetta

      1. Vasaljós á heimilið — eitt á mann er viðmiðið, höfuðljós eru best (frjálsar hendur) — og aukarafhlöður við hliðina á þeim. Geymdu rafhlöðurnar utan ljóssins; þær leka og tæmast síður.
      2. Hleðslubankar, fullhlaðnir. Settu áminningu í símann: fyrsta hvers mánaðar = hlaða bankana.
      3. Útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum (eða sveif/sólarsellu). Þegar net, símkerfi og rafmagn liggja öll niðri er útvarpið leiðin sem eftir stendur. Skrifaðu tíðni Rásar 2 á þínu svæði á tækið.
      4. Kerti, eldfæri og kveikjarar — kerti sem varaljós, í föstum stöllum, aldrei eftirlitslaus.
      5. Vittu hvar rafmagnstaflan er og hvernig lekaliðinn virkar — fyrsta athugun í hverju rafmagnsleysi.
      6. Hugsaðu um bílinn sem varaaflstöð: hleðsla, útvarp og hiti. Reyndu að láta tankinn (eða rafhlöðuna) ekki fara undir hálft að vetri.
    3. Húshitun

      Flest íslensk heimili hitna með hitaveitu og halda hita furðu lengi — en í rafkyntum húsum og langvarandi rofi fellur hitinn hratt. Undirbúningurinn er ekki að hita húsið án veitu, heldur að halda fólki heitu í köldu húsi.

      Gerðu þetta

      1. Veldu fyrirfram „hlýja herbergið“: lítið rými, helst í miðju húsi, með fáum gluggum — þangað safnast heimilisfólk ef hitun bregst.
      2. Eigðu teppi, svefnpoka og ullarföt fyrir alla. Ull heldur hita þótt hún blotni; bómull gerir það ekki.
      3. Eigðu efni til að þétta og einangra: límband, teppi eða filmu fyrir glugga, handklæði í hurðarfals.
      4. Eigðu hitapoka eða sterkar flöskur sem þola heitt vatn — ódýrasta rúmhitunin sem til er.
      5. Vittu hvar inntak hitaveitunnar er og hvernig á að loka fyrir það ef leki kemur upp.
      6. Ekki skipuleggja hitun með prímus, grilli eða gashitara innandyra. Tæki sem brenna gasi eða kolum inni mynda kolmónoxíð. Planið er einangrun og líkamshiti, ekki logi.
      7. Ákveddu hvert fólk leitar skjóls ef húsið verður óíbúðarhæft af kulda — ættingjar, nágrannar, fjöldahjálparstöð.
    4. Peningar og greiðslur

      Greiðslukerfi eru einn viðkvæmasti innviðurinn: netárás, kerfisbilun eða rafmagnsleysi getur slökkt á kortum, posum og netbönkum í einu — þótt búðin sjálf sé opin.

      Gerðu þetta

      1. Eigðu reiðufé heima. Viðmið: nóg fyrir mat, eldsneyti og lyf heimilisins í að minnsta kosti þrjá daga. Smáir seðlar — þegar posar liggja niðri er erfitt að fá gefið til baka.
      2. Geymdu það á öruggum stað sem fullorðið heimilisfólk veit um.
      3. Fleiri en ein greiðsluleið: kort frá fleiri en einum útgefanda ef hægt er, og mundu PIN-númerin — ekki treysta á símann einan til að borga.
      4. Hafðu neyðarnúmer banka (lokun korts) á útprentaða númeralistanum.
    5. Fjarskipti og upplýsingar

      Þegar fjarskipti rofna er of seint að semja um hvar fjölskyldan hittist. Þessi kafli er áætlunin sem B2 gengur út frá.

      Gerðu þetta

      1. Ákveðið samkomustað: einn heima við og einn utan hverfis ef ekki er hægt að komast heim. Allir á heimilinu kunna báða.
      2. Tengiliður utan svæðis: ættingi eða vinur í öðrum landshluta sem allir láta vita af sér hjá — boð komast oft milli landshluta þótt þau komist ekki innan hverfis.
      3. Útprentaður símanúmeralisti á ísskápinn og í grab bagið: fjölskylda, nágrannar, læknir, tryggingafélag, banki — og föstu númerin: 112 (varanúmer 599 0112), 1700, 1717, 1777, Eitrunarmiðstöð 543 2222.
      4. Verkaskipting: hver sækir börnin, hver athugar ömmu, hver sér um dýrin. Skrifað niður, ekki „við reddum því“.
      5. Neyðarvinir: semdu við nágranna, vini eða ættingja um að þið lítið hvert til annars þegar eitthvað gerist. Þeir sem búa næst eru þeir sem koma fyrstir.
      6. Síminn tilbúinn: haltu stýrikerfinu uppfærðu svo viðvaranir Almannavarna berist, settu upp 112-appið, skráðu neyðartengilið og heilsufarsupplýsingar í neyðarstillingar símans og lærðu hvernig SOS-virknin er ræst.
      7. Æfðu upplýsingahreinlæti hversdagslega: hvaðan kemur þetta, hvenær, hver staðfestir? Viðbragðið sem þú æfir í rólegheitum er viðbragðið sem þú átt í óreiðu.

      → Leiðir til að ná sambandi þegar netið er farið: sjá C12.

    6. Heimilisáætlun og grab bag

      Heimilisáætlun svarar þremur spurningum: Hvað gæti gerst hjá okkur? Hvernig drögum við úr líkum á slysum og tjóni? Hvernig bregðumst við ef það gerist samt? Hún þarf ekki að vera skjal upp á tíu síður — ein útprentuð blaðsíða sem allir þekkja slær út allt sem bara er til í höfðinu á einum heimilismanni.

      Gerðu þetta

      1. Skrifaðu áætlunina með heimilisfólkinu — líka börnunum. Fólk fylgir plani sem það tók þátt í að gera.
      2. Taktu daginn með: hvar er hver yfir daginn (vinna, skóli, leikskóli), hver er tengiliður skólans og hverjir mega sækja barnið.
      3. Prentaðu hana út og geymdu á stað sem allir vita um. Rafræn áætlun í dauðum síma er ekki áætlun.
      4. Grab bag (viðbúnaðartaska) — taska tilbúin við útgang, fyrir rýmingu með engum fyrirvara:
        • Afrit af skilríkjum og tryggingaskjölum (plastvasi)
        • Lyf til nokkurra daga, helst viku (sjá A8), og lítil skyndihjálpartaska
        • Skipti um föt, húfa og vettlingar
        • Hreinlætisvörur í smáum umbúðum
        • Vatnsflaska og orkustangir
        • Vasaljós, hleðslubanki og snúrur
        • Reiðufé
        • Listi yfir óbætanlega hluti sem taka á með ef tími gefst (skrifaður í rólegheitum — í óreiðu gleymist það sem skiptir máli)
      5. Æfið einu sinni á ári: hvar er taskan, hvar hittumst við, hver gerir hvað. Tíu mínútna æfing yfir kvöldmat dugar.
    7. Líðan, börn og viðkvæmir hópar

      Neyðarástand reynir ekki jafnt á alla. Börn, eldra fólk, fatlað fólk, langveikir og þeir sem skilja ekki tilkynningar á íslensku eru í viðkvæmari stöðu — og undirbúningur fyrir þau gerist í samtali, fyrirfram.

      Gerðu þetta

      1. Ræddu við börnin um viðbúnað á rólegri stundu — satt, aldurssvarandi og án hræðsluáróðurs. Barn sem veit hvar vasaljósið er og hvert planið er verður öruggara, ekki hræddara.
      2. Kortleggðu hverjir í þínu nærumhverfi gætu þurft aðstoð: sá sem býr einn, sá sem er með lækningatæki háð rafmagni, sá sem kemst ekki sjálfur í skjól. Talaðu við viðkomandi núna — „ég banka upp á ef eitthvað gerist“ er heill undirbúnaðarkafli í einni setningu.
      3. Þeir sem þiggja daglega aðstoð (heimahjúkrun, heimaþjónustu): ræðið við þjónustuaðilann hvað gerist í röskun og hver bakvörðurinn er.
      4. Tungumál: bæklingur Almannavarna, Verum viðbúin, er til á ensku og pólsku, auðlesinn og á táknmáli. Bentu þeim á hann sem þurfa.
      5. Þín eigin líðan er líka innviður. Í erfiðu ástandi er eðlilegt að finna fyrir ótta og óvissu — rútína, samvera, verkefni og hófleg fréttaneysla halda fólki gangandi. Hjálparsími Rauða krossins 1717 er opinn allan sólarhringinn.
      6. Mundu dýrin: þau eru hluti af áætluninni (fóður í A1, búnaður í B8).

      → Úthald í langvarandi ástandi: sjá C14.

    8. Lyf og skyndihjálparbúnaður

      Í röskun geta apótek lokað, lyfjagáttin legið niðri og heilsugæslan þurft að forgangsraða. Sá sem á lyfin sín og kann handtökin bjargar sér — og léttir á kerfinu.

      Gerðu þetta

      1. Lyf sem þú tekur daglega: reyndu að eiga aldrei minna en vikuskammt — endurnýjaðu lyfseðil þegar tvær vikur eru eftir, ekki tveir dagar. Leyfi afgreiðslureglur það ekki: ræddu við lækni eða apótek.
      2. Útprentaður lyfjalisti fyrir hvern á heimilinu: heiti, styrkur, skammtur, ofnæmi og nafn læknis. Í veskið og í grab bagið.
      3. Lyf sem þurfa kæli (t.d. insúlín) og tæki sem þurfa rafmagn (kæfisvefnsvél, súrefnissía): ræddu við lækni eða þjónustuaðila hvað þú gerir í rafmagnsleysi. Þetta þarf plan, ekki von.
      4. Lausasölulyf heimilisins: verkja- og hitalækkandi, ofnæmislyf, lyf við niðurgangi, tilbúin salt- og sykurlausn úr apóteki við vökvatapi (heimagerð blanda til vara: C13) — og hitalækkandi fyrir börn ef börn eru á heimilinu.
      5. Skyndihjálpartaska sem er meira en plástrar:
        • Grisjur, sárabindi og teygjubindi
        • Plástrar og sáralokunarstrimlar
        • Hreinsivökvi eða saltvatn til sáraskolunar
        • Þríhyrna, skæri, flísatöng og öryggisnælur
        • Einnota hanskar og blástursgríma
        • Álteppi og hitamælir
      6. Varagleraugu og aukarafhlöður í heyrnartæki. Smáatriði þar til þau vantar.
      7. Námskeið í skyndihjálp — og upprifjun á um tveggja ára fresti. Rauði krossinn heldur þau um allt land. Búnaður án kunnáttu er bara þyngd.

      → Handtökin sjálf: B7 (slys) og B10 (bráð veikindi). Þegar hjálp er dögum í burtu: C13.

    9. Skjöl, tryggingar og stafrænn viðbúnaður

      Eftir áfall byrjar pappírsvinnan: tryggingar, skilríki, bankar. Hún gengur hratt hjá þeim sem eiga afritin — og mjög hægt hjá hinum.

      Gerðu þetta

      1. Afrit af lykilskjölum í plastvasa í grab baginu og rafrænt á öruggum stað utan heimilis: vegabréf, ökuskírteini, tryggingaskírteini, lyfjalistar, mikilvægir samningar.
      2. Farðu yfir tryggingarnar — sérstaklega innbúið. Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) bætir tjón af eldgosum, jarðskjálftum, skriðuföllum, snjóflóðum og vatnsflóðum — en aðeins á því sem er brunatryggt. Húseignir eru skyldutryggðar gegn bruna; innbúið er það aðeins ef þú ert með innbús- eða heimilistryggingu. Eigin áhætta dregst frá bótum.
      3. Vittu hvað NTÍ bætir ekki: óveðurs- og foktjón, tjón af asahláku og skýfalli og snjóþunga. Hvort það fæst bætt ræðst af skilmálum almennu trygginganna þinna — lestu þá.
      4. Myndaðu innbúið: gakktu um heimilið með símann einu sinni á ári og taktu upp myndskeið af hverju herbergi. Fimm mínútur sem spara vikur af þrefi.
      5. Aðgangur án símans: rafræn skilríki, auðkennisöpp og tveggja þátta auðkenning hanga öll á einu tæki. Geymdu varakóða útprentaða og vittu hvernig þú endurheimtir aðgang ef síminn týnist eða eyðileggst.
      6. Kort og upplýsingar án nets: sæktu kort af þínu svæði til notkunar án nets, og eigðu pappírskort af landshlutanum í bílnum.
      7. Afrit af því óbætanlega: fjölskyldumyndir og skjöl á tveimur stöðum — helst öðrum utan heimilis.

      Ef tjón verður: öryggi fólks fyrst — og stöðvaðu frekara tjón ef það er hættulaust (loka fyrir vatn, breiða yfir). Myndaðu allt áður en þú hreyfir við því, bíddu með aðrar viðgerðir og hentu ekki skemmdum munum fyrr en tjónið hefur verið metið. Tilkynntu sem fyrst — til NTÍ í síðasta lagi innan árs (þjónustuver 575 3300).

    10. Bíllinn og ferðalög

      Íslenskt veður er hættulegast þeim sem eru á ferðinni — bíll sem festist í ófærð er fljótt orðinn alvörumál. Bíllinn er annað heimilið og þarf sinn viðbúnað.

      Í bílnum yfir veturinn

      • Skafa, snjóskófla og dráttartóg
      • Teppi eða svefnpoki, húfa og vettlingar
      • Vasaljós eða höfuðljós og endurskinsvesti
      • Vatn og nasl sem þolir frost
      • Hleðslusnúra fyrir símann og hleðslubanki
      • Startkaplar eða starttæki (sjá handbók bílsins) og sjúkrakassi
      • Tankurinn (eða rafhlaðan) yfir hálfu

      Áður en lagt er af stað

      1. Veðurspá og viðvaranir á vedur.is — fyrir alla leiðina, ekki bara brottfararstað.
      2. Færð og lokanir á umferdin.is eða í síma 1777.
      3. Láttu einhvern vita hvert þú ferð og hvenær þú ætlar að vera kominn. Fyrir ferðir utan alfaraleiða: ferðaáætlun á safetravel.is.
      4. Nái appelsínugul eða rauð viðvörun yfir leiðina þína er rétta ferðaáætlunin að fresta ferðinni.

      Ef þú festist

      1. Vertu í bílnum. Hann er skjól og hann finnst; gangandi maður í byl finnst ekki.
      2. Hringdu í 112 og lýstu staðsetningu. 112-appið sendir hana með þegar samband næst.
      3. Vélin í gangi: aðeins með púströrið alveg frítt af snjó — athugaðu það aftur og aftur í skafrenningi — og rifu á glugga hlémegin. Keyrðu hana í lotum, ekki stöðugt. Rafbíll: sparaðu hleðsluna fyrir hita og síma.
      4. Kveiktu á viðvörunarljósum, klæddu þig í allt sem til er og hreyfðu tær og fingur.

      Sumarhús og ferðalög: sami þriggja daga hugsunarháttur gildir í bústaðnum — vatn, matur, ljós, hiti, útvarp. Og þar er lengra í hjálpina.

    11. Húsið og eldvarnir

      Eldsvoði á heimili er hætta sem stendur flestum nær en annað í þessu appi — og sú sem einna ódýrast er að verjast. Þessi kafli er forsenda B9.

      Eldvarnir — lágmarkið

      1. Reykskynjarar í öllum svefnherbergjum, á gangi framan við þau og á hverri hæð — helst í hverju rými. Optískur skynjari hentar við eldhús og þvottahús.
      2. Prófaðu þá reglulega með prufuhnappnum, skiptu um rafhlöðu árlega — nema skynjarinn sé með innbyggða langtímarafhlöðu (1. desember er dagur reykskynjarans) — og endurnýjaðu skynjarana sjálfa á um tíu ára fresti.
      3. Slökkvitæki við útgang — skylt er að hafa að minnsta kosti eitt í hverri íbúð; 6 kg dufttæki er algengt viðmið. Láttu yfirfara það samkvæmt merkingu.
      4. Eldvarnarteppi á vegg í eldhúsi — í seilingarfjarlægð, ekki beint ofan við eldavélina.
      5. Tvær flóttaleiðir úr íbúðinni og samkomustaður úti sem allir þekkja. Æfið leiðirnar — líka í myrkri.
      6. Hleðsla: hlaðið síma, hlaupahjól og verkfærarafhlöður á daginn, á hörðu undirlagi og undir eftirliti — aldrei í rúmi og aldrei í flóttaleið.
      7. Gas og opinn eldur: gaskútar geymdir úti eða í loftræstu rými. Gasskynjari þar sem gas er notað inni, kolmónoxíðskynjari þar sem kamína eða arinn er.

      Húsið sjálft

      1. Vittu hvar inntök vatns, hitaveitu og rafmagns eru — og að lokarnir snúist. Prófaðu þá einu sinni á ári; fastur loki í vatnsflaumi er of seint.
      2. Jarðskjálftar: festu háar hillur og skápa við vegg, geymdu þungt neðst, hengdu ekkert þungt yfir rúmum og festu sjónvarp og hitakút.
      3. Óveður: bittu niður eða taktu inn lausamuni (trampólín, grill, garðhúsgögn) og hreinsaðu niðurföll og rennur fyrir haustið.
      4. Sumarhús: haltu gróðri í lágmarki næst húsinu, geymdu ekkert eldfimt undir verönd og hafðu vatn, klöppur og slökkvitæki til taks (sjá B13).
    12. Vikan og lengra

      Þrír dagar eru lágmark stjórnvalda, ekki hámark skynseminnar. Ísland er eyja sem flytur inn eldsneyti, lyf og stóran hluta matvæla — röskun á flutningum eða langvarandi rafmagnsleysi getur varað lengur en þrjá daga. Þessi kafli er fyrir þá sem eru búnir með grunninn.

      Vika fyrir heimilið

      1. Vatn: 3 lítrar á mann á dag í sjö daga = 21 lítri á mann til drykkjar og matargerðar. Hreinlæti og salerni þurfa margfalt meira — geymdu aukabrúsa til þess, en þekktu líka næsta vatnsból og takmörk hreinsunar (C1); það er ekki raunhæft að geyma allt.
      2. Matur: reiknaðu í orku, ekki í dósum — miðaðu við um 2.000 hitaeiningar (kcal) á dag á fullorðinn, meira við erfiði og í kulda. Byggðu á þurrvöru sem geymist árum saman (C10) og bættu dósamat og fitu við.
      3. Eldunargas: prófaðu einu sinni hve lengi kúturinn þinn endist við venjulega eldun, og eigðu varakút samkvæmt því.
      4. Lyf: mánaðarbirgðir af daglegum lyfjum ef læknir og lyfseðill leyfa.
      5. Hreinlæti: sterkir pokar, þurrefni í neyðarsalerni (kattasandur eða sag), sápa og handspritt til viku (C8).
      6. Reiðufé til viku, ekki þriggja daga.

      Búnaður sem margir eiga nú þegar — og telst með

      • Útilegubúnaður: tjald, svefnpokar, dýnur, prímus
      • Gasgrill með fullum kút og varakút
      • Hleðslubankar sem samanlagt geyma margar símahleðslur
      • Verkfærarafhlöður með USB-millistykki (C6)
      • Brúsar undir vatn og eldsneyti

      Hugsunarhátturinn

      • Hringrásarbúr slær neyðarlager út: kauptu aðeins meira af því sem þú notar hvort eð er, notaðu elsta fyrst. Þá rennur lítið út og kostnaðurinn dreifist.
      • Kunnátta vegur þyngra en birgðir eftir fyrstu vikuna — þess vegna er C-hluti appsins til.
      • Ekki hamstra í ástandi. Lengri viðbúnaður er byggður upp á rólegum tímum, eina dós í einu.
    Heim

    B · Viðbrögð

    Sama uppbygging í hverjum kafla svo hún sé fyrirsjáanleg undir streitu: einkenni → fyrstu 10 mín → fyrsta klst → viðvarandi → rýming/hjálp.

    Prenta þennan hluta
    1. Rafmagnsleysi
      Einkenni
      Rafmagn fer af íbúð, hverfi eða stærra svæði. Óvíst hve lengi. Ljós, eldavél, net, posar, lyftur og hleðsla detta út samtímis — hitaveitan heldur yfirleitt áfram að renna, en dælur og stýringar geta stöðvast í lengra rofi.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Athugaðu hvort rofið sé bara hjá þér: kíktu á lekaliða og öryggi í rafmagnstöflunni og á glugga nágranna.
      2. Kveiktu á vasaljósi eða símaljósi — ekki kertum strax. Kerti eru síðasta úrræði og aldrei skilin eftir eftirlitslaus.
      3. Settu símann í straumsparnað (lækkaðu birtu, slökktu á Bluetooth og óþörfum öppum). Síminn er núna útvarp, ljós og neyðarlína — ekki afþreying.
      4. Slökktu á eldavél, ofnum, straujárni og öðrum tækjum sem voru í gangi, svo ekkert fari í gang eftirlitslaust þegar rafmagnið kemur aftur. Skildu eitt ljós eftir kveikt svo þú sjáir strax hvenær það gerist.
      5. Haltu kæli og frysti lokuðum. Hver opnun hleypir kuldanum út.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Kveiktu á rafhlöðuútvarpi — Rás 2 er neyðarrás RÚV. Ef símkerfi virkar: 112.is og almannavarnir.is fyrir tilkynningar. Hringdu ekki í 112 til að spyrja um rafmagnið — það er fyrir neyð.
      2. Láttu heimilisfólk vita hvar þú ert og athugaðu nágranna sem gætu þurft aðstoð — aldraða, fatlaða, fólk með lækningatæki sem ganga fyrir rafmagni.
      3. Taktu stöðu á birgðum: vatn, matur sem þarf ekki eldun, hleðslubankar, rafhlöður, reiðufé. Fylltu könnur og baðkar af vatni ef vatnsveitan reiðir sig á dælur á þínu svæði.
      4. Gerðu ráð fyrir að posar og hraðbankar virki ekki. Reiðufé er greiðsluleiðin.
      Viðvarandi ástand (klukkustundir → dagar)
      • Matur: Notaðu fyrst viðkvæman mat úr kæli, svo úr frysti. Lokaður kælir heldur mat öruggum í um 4 klst; fullur frystir í um tvo sólarhringa, hálffullur í um einn. Eftir meira en 4 klst rafmagnsleysi: hentu kjöti, fiski, mjólkurvörum og afgöngum úr kælinum — nema hitamælir sýni að þau hafi haldist við 4°C eða kaldara. Smakkaðu aldrei til að prófa — í vafa: henda.
      • Eldun: Prímus eða gasgrill — aðeins utandyra. Gastæki innandyra valda kolmónoxíðeitrun sem hvorki sést né finnst lykt af.
      • Hiti: Safnaðu heimilisfólki í eitt herbergi, helst lítið og í miðju húsi. Lokaðu hurðum, breiddu teppi fyrir glugga, klæðist lögum. Hitaveituhús halda hita lengur en rafkynt — í rafkyntum húsum (algengt á Vestfjörðum og köldum svæðum) fellur hitinn hratt.
      • Hleðsla: Forgangsraðaðu hleðslubönkum í einn síma á heimili. Bíllinn er varahleðslustöð — og útvarp.
      • Myrkur: Eitt kerti í föstum stalli á öruggum stað gefur furðu mikið ljós. Aldrei sofna frá logandi kerti.
      Rýming / hjálp
      Farðu að heiman ef eitthvað af þessu á við:
      • Fólk nær ekki að halda á sér hita þrátt fyrir föt, teppi og hlýja herbergið. Farðu fyrr ef ungbörn, eldra fólk eða veikir eru á heimilinu — ekki bíða eftir að kuldinn verði hættulegur
      • Einhver reiðir sig á rafknúið lækningatæki og varaafl er ekki til staðar
      • Almannavarnir gefa fyrirmæli um rýmingu
      Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins opna í langvarandi rofi — staðsetning tilkynnt á Rás 2. Fylgdu rýmingarrútínunni (B8).

      → Ef rofið varir lengur en 2–3 sólarhringa: sjá C6 — Orka, C7 — Hiti án hitaveitu, C5, C10 og C11 — Matur.

    2. Net- og fjarskiptarof
      Einkenni
      Símtöl ná ekki í gegn, netið svarar ekki, skilaboð sendast ekki — en rafmagnið er mögulega á. Kortaleiðsögn, netbankar, posar, fréttamiðlar og boðleiðir detta út samtímis. Orsökin getur verið sæstrengsrof, netárás, bilun eða rafmagnsleysi hjá fjarskiptafyrirtæki.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Athugaðu hvort rofið sé hjá þér eða stærra: prófaðu bæði WiFi og farsímanet, prófaðu SMS — stutt textaskilaboð komast stundum í gegn þegar símtöl og net gera það ekki.
      2. Endurræstu símann einu sinni. Ekki oftar — það tæmir bara rafhlöðuna.
      3. Kveiktu á útvarpi. Rás 2 er neyðarrás RÚV og rafhlöðuútvarp nær henni þótt net og símkerfi liggi niðri.
      4. Ekki leggja af stað út í óvissu til að „ná sambandi“. Byrjaðu heima.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Virkjaðu fjarskiptaáætlun heimilisins: allir mæta eða láta vita á fyrirfram ákveðnum samkomustað. Ef engin áætlun er til — þetta er ástæðan fyrir A5.
      2. Náðu í útprentaða símanúmeralistann. Númer sem bara eru til í símanum eru ekki til ef síminn deyr.
      3. Gerðu ráð fyrir að greiðslukerfi séu skert: reiðufé er greiðsluleiðin.
      4. Ef þú þarft neyðaraðstoð: hringdu alltaf fyrst í 112 — líka þótt síminn sýni ekkert samband; neyðarsímtal fer um annað farsímanet ef það næst. Ef símtalið næst ekki eða rofnar: varanúmerið 599 0112, SMS til 112, netspjall á 112.is eða 112-appið. Ef ekkert virkar og ferðin er örugg: farðu á næstu heilsugæslu, slökkvistöð eða lögreglustöð.
      Viðvarandi ástand
      • Hlustaðu á útvarp á heila tímanum og slökktu þess á milli — það sparar rafhlöður og fréttir berast hvort eð er í lotum.
      • Treystu aðeins staðfestum upplýsingum frá stjórnvöldum. Í fjarskiptarofi blómstra sögusagnir; það sem „einhver heyrði“ er ekki heimild.
      • Kíktu á nágranna — sérstaklega þá sem búa einir eða treysta á öryggishnappa, sem gætu verið óvirkir.
      • Skrifaðu niður það sem skiptir máli. Minnið er lélegur miðill undir streitu.
      Rýming / hjálp
      Fjarskiptarof eitt og sér kallar sjaldan á rýmingu — heimilið er áfram öruggasti staðurinn. Ef rafmagnið fer líka: sjá B1. Ef þú verður að ferðast án leiðsagnar og korta: sjá C4 — Rötun án GPS.

      → Langvarandi rof: sjá C12 — Fjarskipti og merkjagjöf án nets. Haltu rútínu, fylgstu með útvarpi, hjálpaðu í kringum þig.

    3. Jarðskjálfti / eldgos
      Einkenni
      Jarðskjálfti: snöggur titringur eða hristingur, oft án fyrirvara. Eldgos: drunur, gosmökkur, tilkynningar — oft fer skjálftahrina á undan. Fylgikvillar: eftirskjálftar, öskufall, gasmengun, grjóthrun, skriður.
      Fyrstu 10 mínúturnar — jarðskjálfti
      1. Á meðan hristist: Krjúptu – skýldu – haltu. Komdu þér undir borð eða að innvegg, verðu höfuð og háls, haltu þér. Ekki hlaupa út á meðan hristingurinn stendur — flest slys verða af hlutum sem falla.
      2. Fjarri gluggum, speglum, háum húsgögnum og hlutum sem geta fallið.
      3. Úti: færðu þig frá húsum, ljósastaurum og raflínum og krjúptu á opnu svæði. Í bíl: stöðvaðu á öruggum stað fjarri brúm og hlíðum og vertu í bílnum. Undir brattri hlíð: færðu þig frá henni — grjóthrun fylgir skjálftum.
      4. Þegar hristingi lýkur: farðu í skó áður en þú gengur um — glerbrot eru algeng meiðsl eftir skjálfta.
      5. Athugaðu heimilisfólk. Slökktu eld ef kviknað hefur. Búðu þig undir eftirskjálfta — þeir koma.
      6. Við sjó eftir mjög harðan skjálfta: færðu þig upp frá ströndinni (sjá B12).
      Fyrstu 10 mínúturnar — eldgos
      1. Þú ert ekki í kapphlaupi við hraun — en gas og aska ferðast hratt með vindi. Farðu inn, lokaðu gluggum og slökktu á loftræstingu.
      2. Kveiktu á Rás 2 og fylgdu fyrirmælum. Ef rýming er fyrirskipuð á þínu svæði: farðu strax, ekki „kíkja fyrst“.
      3. Gos undir jökli getur valdið jökulhlaupi — á hlaupsvæðum gildir rýmingaráætlun svæðisins tafarlaust (sjá B12).
      Fyrsta klukkustundin
      1. Hlustaðu á Rás 2; ef net virkar: almannavarnir.is og vedur.is.
      2. Metið skemmdir á húsinu. Farðu ekki inn í byggingu sem er sýnilega sprungin eða skekkt. Lokaðu fyrir vatnsinntak ef lagnir hafa rofnað.
      3. Myndaðu tjón áður en þú tekur til. Bíddu með viðgerðir og hentu ekki skemmdum munum fyrr en tjónið hefur verið metið — Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) bætir skjálfta- og gostjón á brunatryggðum eignum.
      4. Kíktu á nágranna.
      Viðvarandi ástand
      • Öskufall: haltu þig inni eins og hægt er. Úti: hyldu vit með grímu (helst FFP2) eða klút og verðu augu. Blaut aska er mjög þung og getur sligað flöt þök. Hreinsun af þaki er fallhætta: fylgdu leiðbeiningum almannavarna, vinndu aldrei einn og farðu ekki upp á þak sem er farið að svigna. Fylgstu með tilkynningum um neysluvatn og notaðu ekki öskumengað vatn.
      • Gasmengun (SO₂ o.fl.): haltu þig innandyra, lokaðu og þéttu, fylgstu með loftgaedi.is. Gas safnast í lægðir og dældir — forðastu þær utandyra.
      • Eftirskjálftar: festu það sem losnaði, sofðu ekki undir þungum hlutum.
      Rýming / hjálp
      Rýming vegna goss eða skjálftaskemmda fylgir fyrirmælum almannavarna — tafarlaust og án undantekninga. Taktu grab bag og fylgdu rýmingarrútínunni (B8).

      → Langvarandi öskufall eða brottvísun af svæði: sjá C1 — Vatn, C8 — Hreinlæti, C3 — Skjól.

    4. Óveður / snjóflóð / flóð
      Einkenni
      Veðurstofan gefur út viðvaranir í þremur litum: gul (varúð), appelsínugul (hættulegt veður, röskun líkleg), rauð (stórhættulegt, verulegar afleiðingar). Snjóflóðahætta er bundin við skilgreind hættusvæði; flóð fylgja leysingum, úrhelli og sjávarflóðum.
      Fyrstu 10 mínúturnar (viðvörun gefin / veður skellur á)
      1. Taktu ákvörðunina sem skiptir mestu máli: vertu kyrr þar sem þú ert öruggur. Nái appelsínugul eða rauð viðvörun yfir svæðið þitt eða leiðina: frestaðu öllum ferðum sem mega bíða — á rauðri ferðast enginn nema líf liggi við.
      2. Ef þú ert úti eða á ferð: komdu þér í næsta örugga skjól — hús, ekki bíl á berangri. Ef þú festist í bíl í óveðri: vertu í bílnum, hringdu í 112, hafðu púströrið frítt af snjó ef vél er í gangi (sjá A10).
      3. Festu eða taktu inn lausamuni ef enn er tími: trampólín, garðhúsgögn, ruslatunnur. Þau verða að skeytum í roki.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Hlaððu síma og hleðslubanka meðan rafmagnið helst — óveður eru algengasta orsök rafmagnsleysis.
      2. Fylltu á vatnsílát. Farðu yfir birgðir.
      3. Fylgstu með vedur.is og Rás 2; færð og lokanir á umferdin.is eða í síma 1777. Láttu heimilisfólk á ferð vita að það eigi að halda kyrru fyrir, ekki reyna heim.
      4. Haltu þig frá gluggum í verstu hviðunum.
      Viðvarandi ástand
      • Ef rafmagnið fer: sjá B1 — allt þar gildir.
      • Snjóflóðahætta: Á skilgreindum hættusvæðum gilda rýmingarfyrirmæli lögreglustjóra án tafar. Á ferðalagi: forðastu brattar brekkur (um 30–45°) og gil í og eftir hríð — langflest snjóflóð á fólk falla þar.
      • Flóð: Færðu fólk, dýr og verðmæti upp á efri hæð eða hærra land. Gakktu aldrei og keyrðu aldrei yfir straumvatn — um 15 cm af straumvatni geta fellt fullorðinn og um 30 cm fleytt fólksbíl af stað. Snertu ekki rafmagnstæki í blautu rými.
      • Farðu ekki út „að skoða“ fyrr en viðvörun er afstaðin — fólk slasast þegar það fer of snemma af stað.
      Rýming / hjálp
      Rýming vegna snjóflóðahættu eða flóða fylgir fyrirmælum tafarlaust — hún er alltaf gefin með öryggismörkum og „að bíða og sjá“ étur þau upp. Grab bag og B8.

      → Skriður, jökulhlaup og sjávarflóð: sjá B12. Langvarandi einangrun eftir óveður (ófærð, rafmagnsleysi): sjá B1 og C7 — Hiti.

    5. Vatns- eða hitaveiturof
      Einkenni
      Ekkert vatn úr krana, þrýstingsfall, brúnleitt eða gruggugt vatn — eða tilkynning veitufyrirtækis um mengun eða bilun. Hitaveiturof: ofnar kólna, ekkert heitt vatn.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Athugaðu umfangið: er þetta bara þitt hús (spurðu nágranna, kíktu á inntak) eða hverfið?
      2. Leki innanhúss: lokaðu fyrir aðalinntak strax. Að vita hvar það er — og að það snúist — er A-verkefni (A11), ekki eitthvað sem þú finnur út í vatnsflaumi.
      3. Mengunartilkynning: hættu strax að drekka og elda úr krananum. Treystu ekki útlitinu — mengað vatn getur verið tært.
      4. Ef kalt vatn rennur enn (hitaveiturof eingöngu): ekkert bráðavandamál — farðu í fyrsta klst skrefin.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Náðu í vatnsbirgðirnar (A1). Ef vatn rennur enn en rof er yfirvofandi: fylltu allar könnur, potta, brúsa og baðkarið.
      2. Hitaveiturof: byrjaðu strax að verja hita — lokaðu gluggum og dragðu fyrir, minnkaðu umgang um útidyr og veldu eitt aðalrými (sjá B1 og C7). Húsið kólnar hægar en þú heldur fyrstu klukkutímana; nýttu þá til undirbúnings.
      3. Fylgstu með tilkynningum veitunnar og Rás 2 um umfang og áætlaðan viðgerðartíma — og um hvort nota megi rafmagnsofna; rafkerfið þolir ekki að allir kveiki á þeim í einu.
      Viðvarandi ástand
      • Skömmtun: um 3 lítrar á mann á dag til drykkjar og matargerðar. Þvottur og uppvask bíða.
      • Óöruggt vatn: farðu eftir tilkynningu veitunnar. Örverumengun: kröftug suða í eina mínútu gerir vatnið öruggt (sjá C1). Efnamengun: hvorki suða né klór hjálpar — þá gildir aðeins flöskuvatn og vatn frá úthlutunarstað.
      • Salerni án vatns: sturtaðu niður með fötu af óhreinu vatni (baðkarsbirgðirnar) — eða notaðu neyðarsalerni: poki í skálina, þurrefni yfir, binda og geyma fjarri íverustað (sjá C8).
      • Handhreinlæti víkur aldrei: handspritt eða skömmtuð skol — óhreinar hendur dreifa veikindum hraðar en vatnsleysið sjálft.
      • Frost: inntaksrými og lagnir við útveggi eru viðkvæmust. Fylgstu með þeim; ef húsið stefnir undir frostmark: sjá C15 um að verja lagnir.
      Rýming / hjálp
      Vatns- eða hitaveiturof eitt og sér kallar sjaldan á rýmingu nema í langvarandi frosthörkum — þá gildir sama viðmið og í B1: farðu áður en kuldinn verður hættulegur. Veitur og almannavarnir opna yfirleitt vatnsúthlutunarstaði í lengri rofum; staðsetning tilkynnt á Rás 2.

      → Lengra en 2–3 sólarhringar: sjá C1 — Vatn, C7 — Hiti, C8 — Hreinlæti.

    6. Öryggisógn / stríðsástand
      Einkenni
      Öryggisógn birtist sjaldan eins og í bíómynd. Oftast birtist hún sem hitt: rafmagnsleysi (B1), fjarskiptarof (B2) eða veiturof (B5) af völdum netárása eða skemmdarverka á innviðum — ásamt tilkynningum stjórnvalda og mikilli upplýsingaóreiðu.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Andaðu. Það sem þú gerir fyrstu mínúturnar snýst um upplýsingar, ekki aðgerðir.
      2. Kveiktu á Rás 2. Fyrirmæli stjórnvalda berast þar og á öðrum opinberum leiðum (almannavarnir.is, 112.is, SMS-boð) — það eru þau sem gilda.
      3. Ekki deila, áframsenda eða endursegja neitt óstaðfest. Í öryggisástandi eru rangar upplýsingar vopn.
      4. Ekki hringja í 112 til að spyrja frétta — línan er fyrir neyð.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Farðu yfir birgðastöðu heimilisins: vatn, matur, lyf, reiðufé, hleðsla. Fylltu vatnsílát.
      2. Settu fjarskiptaáætlun fjölskyldunnar í gang — hvar hittist fólk ef fjarskipti rofna.
      3. Verslaðu rólega ef búðir eru opnar og þig vantar raunverulega eitthvað — en ekki hamstra. Hamstur tæmir hillur fyrir þá sem mest þurfa og skapar ástandið sem það óttast.
      4. Taktu eldsneyti á bílinn ef tankurinn er undir hálfum og aðstæður leyfa.
      Viðvarandi ástand
      • Upplýsingahreinlæti er öryggisatriði: spyrðu alltaf — hver segir þetta, hvenær, og hefur það verið staðfest af stjórnvöldum? Gamlar myndir og rangar fullyrðingar dreifast hratt í ótta. Taktu öllu sem vekur sterkar tilfinningar með fyrirvara.
      • Skjól innandyra: ef fyrirmæli berast um að halda sig inni (mengun, hættuástand): veldu innsta rými hússins, lokaðu gluggum, slökktu á loftræstingu og bíddu eftir afléttingu.
      • Joðtöflur: heimili þurfa ekki að eiga þær. Birgðir eru geymdar miðlægt hjá sóttvarnalækni og þeim er dreift ef á þarf að halda. Þær eru aðeins teknar samkvæmt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda — aldrei í forvarnarskyni upp á eigin spýtur; ástæðulaus notkun gerir meiri skaða en gagn.
      • Börn og líðan: haltu rútínu, segðu satt á aldurssvarandi hátt, takmarkaðu fréttaflóð — hjá þér líka. Sjá A7 og C14.
      Rýming / hjálp
      Í öryggisástandi er heimilið nær alltaf öruggasti staðurinn þar til annað er sagt. Rýming fylgir eingöngu fyrirmælum stjórnvalda — sjálfsprottinn flótti út á vegi skapar hættu og tefur viðbragðsaðila. Ef fyrirmæli koma: grab bag og B8.

      → Langvarandi ástand: allt C-efnið á við — og áfallaþol samfélagsins byggist á að nágrannar standi saman.

    7. Slys og áverkar
      Einkenni
      Einhver slasast alvarlega — mögulega við aðstæður þar sem hjálp tefst (óveður, ófærð, fjarskiptarof). Forgangsröðin er alltaf sú sama: Er svæðið öruggt fyrir þig? Er viðkomandi með meðvitund? Andar hann eðlilega? (Bráð veikindi — brjóstverkur, heilablóðfall, ofnæmi, flog, eitrun — eru í B10.)
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Hringdu í 112. Segðu hvar þú ert, hvað gerðist og hve margir eru slasaðir. Settu á hátalara og fylgdu fyrirmælum neyðarvarðar. Leggðu ekki á fyrr en þér er sagt það. Ef símkerfi er niðri: sendu einhvern eftir hjálp á heilsugæslu, slökkvistöð eða til nágranna.
      2. Meðvitundarlaus og andar ekki eðlilega: hjartahnoð strax — miðja bringu, 100–120 þrýstingar á mínútu, 5–6 cm dýpt hjá fullorðnum, sem fæst hlé. Kunnirðu blástur: 30 hnoð og 2 blástrar til skiptis; annars bara hnoð. Börn og ungbörn: aðrar áherslur (grynnra hnoð, blástur mikilvægari) — neyðarvörður leiðbeinir þér. Skiptist á um það bil á tveggja mínútna fresti ef fleiri eru til staðar.
      3. Hjartastuðtæki: sendu einhvern eftir því ef það er nálægt. Kveiktu á því og fylgdu röddinni — tækið gefur ekki stuð nema þess þurfi.
      4. Meðvitundarlaus en andar: læst hliðarlega, fylgstu með önduninni, haltu hita á viðkomandi.
      5. Köfnun (aðskotahlutur í hálsi): getur viðkomandi hóstað? Hvettu hann til þess. Geti hann hvorki hóstað, talað né andað: allt að 5 högg milli herðablaða með lófarótinni, svo allt að 5 kviðþrýstingar (hnefi ofan nafla, kippt inn og upp) — til skiptis þar til hluturinn losnar. Ungbörn: bakhögg og brjóstþrýstingar, ekki kviðþrýstingar. Ekki þreifa blint með fingrum upp í munninn. Missi viðkomandi meðvitund: 112 og hjartahnoð. Sá sem fékk kviðþrýstingar þarf læknisskoðun á eftir.
      6. Mikil blæðing: þrýstu beint og fast á sárið með því hreinasta sem er við höndina og slepptu ekki. Blæði í gegn: bættu ofan á, taktu ekki af. Lífshættuleg blæðing úr útlim sem þrýstingur stöðvar ekki: stasi (snarvöndull) ofan við sárið, hertur þar til blæðing hættir — skráðu tímann.
      7. Brunasár: kældu strax með köldu eða volgu rennandi vatni í um 20 mínútur. Ekki ís, ekki smyrsl, ekki fjarlægja föt sem eru föst í sárinu. Hyldu svo laust með plastfilmu eða hreinum, þurrum umbúðum.
      Fyrsta klukkustundin
      1. Ofkæling (skjálfti, sljóleiki, þvoglumæli): komdu viðkomandi í skjól, úr blautum fötum, vefðu í teppi — höfuð líka — og hitaðu rólega. Heitir sykraðir drykkir ef viðkomandi er með fulla meðvitund. Ekkert áfengi, ekki nudda útlimi.
      2. Höfuðhögg, hátt fall eða harður árekstur: haltu höfði og hálsi kyrrum og gerðu ráð fyrir hálsáverka. Viðkomandi þarf læknisskoðun þótt ekkert sjáist á honum — leyndir áverkar koma fram síðar.
      3. Fylgstu stöðugt með meðvitund og öndun þar til hjálp berst.
      Viðvarandi ástand (hjálp tefst klukkustundum saman)
      • Haltu hita á sjúklingnum — ofkæling læðist að öllum slösuðum, líka innandyra.
      • Vökvi í litlum sopum ef viðkomandi er með fulla meðvitund og engin kviðmeiðsl.
      • Skrifaðu niður tímasetningar: hvenær slysið varð, breytingar á meðvitund, lyf sem voru gefin. Þetta er gull fyrir sjúkraflutningafólkið sem tekur við.
      • Hreinsaðu minni sár með hreinu vatni og hyldu — sýking er óvinurinn þegar hjálp er fjarri (sjá C8 og C13).
      Rýming / hjálp
      Flyttu slasaða aðeins sjálfur ef staðurinn er hættulegur eða 112 segir þér það — röng flutningstilraun getur gert illt verra, sérstaklega við hryggáverka.

      → Skyndihjálp lærist ekki af skjá í neyð: farðu á námskeið (Rauði krossinn heldur þau um allt land). Þessi kafli er upprifjun, ekki kennsla.

    8. Rýming heimilis
      Einkenni
      Fyrirmæli um rýmingu berast frá almannavörnum eða lögreglu — í síma (boð frá 112), á Rás 2, eða með því að bankað er á dyr. Rýming er alltaf gefin með öryggismörkum: farðu strax, ekki semja við hana.
      Ef tíminn er naumur (mínútur)
      Aðeins fernt: fólk → lyf → grab bag → út. Allt annað er dót.
      Ef tími gefst (fyrsta klukkustundin) — rýmingarrútínan
      1. Grab bag, lyf allra, skilríki, hleðslutæki og reiðufé í bílinn eða á bakið.
      2. Dýrin með — og búnað þeirra: ól, taumur, búr, fóður. Dýr sem verða eftir eiga fáa góða kosti.
      3. Klæddu alla eftir veðri, ekki eftir árstíð inni í bílnum.
      4. Slökktu á rafmagnstækjum og eldavél og lokaðu fyrir gaskúta. Skrúfaðu fyrir neysluvatnið ef þú veist hvernig. Láttu hitann vera á húsinu — kalt hús skemmist.
      5. Lokaðu öllum gluggum og læstu hurðum.
      6. Skildu eftir ljós í forstofu og við útidyr.
      7. Merktu húsið rýmt eins og rýmingaráætlun svæðisins segir til um (rýmingarskilti eða miði í glugga: „Rýmt“ + dagsetning). Tefðu ekki brottför vegna þess.
      Á leiðinni og á áfangastað
      1. Fylgdu tilgreindri rýmingarleið — hún er valin af ástæðu. Styttri leiðin þín gæti verið lokuð eða hættuleg.
      2. Farðu á samkomustað fjölskyldunnar eða beint í fjöldahjálparstöð (staðsetning tilkynnt á Rás 2; oftast skólar).
      3. Skráðu þig í fjöldahjálparstöðinni — eða eftir þeirri leið sem almannavarnir og Rauði krossinn tilkynna — líka þótt þú gistir annars staðar. Skráningin er það sem segir leitarfólki að þú sért heill á húfi.
      4. Láttu tengiliðinn þinn utan svæðis vita hvar þú ert.
      Heimkoma
      Farðu ekki til baka fyrr en afléttingarfyrirmæli hafa verið gefin — svæði getur litið öruggt út og verið það ekki. Við heimkomu: skoðaðu húsið að utan fyrst, lykt af gasi/reyk = ekki fara inn, myndaðu tjón fyrir tryggingar áður en þú tekur til (A9).

      → Löng fjarvera frá heimili: fjöldahjálparstöðvar og þjónustumiðstöðvar sjá um grunnþarfir og ráðgjöf — þú þarft ekki að leysa allt sjálfur.

    9. Eldsvoði á heimili
      Einkenni
      Reykskynjari vælir, brunalykt, reykur eða sýnilegur eldur. Eldur í íbúð magnast á örfáum mínútum og það er reykurinn sem drepur, ekki loginn — oft áður en fólk vaknar. Þess vegna eru þetta mínútur, ekki klukkustundir.
      Fyrstu 2 mínúturnar
      1. Varaðu alla við — hrópaðu, vektu. Allir út.
      2. Lítill eldur sem þú ræður við (pottur, ruslafata): slökktu með eldvarnarteppi eða slökkvitæki — aðeins ef flóttaleiðin er fyrir aftan þig. Beindu tækinu að rótum eldsins.
      3. Eldur í potti eða pönnu: lok eða eldvarnarteppi yfir, slökktu á hellunni, hreyfðu ekki pottinn. Aldrei vatn á logandi feiti.
      4. Ráðirðu ekki við eldinn á fyrstu sekúndunum: hættu og farðu. Hlutir eru bættir; fólk ekki.
      Út
      1. Lokaðu hurðum á eftir þér — lokuð hurð heldur eldi og reyk í skefjum í dýrmætar mínútur.
      2. Reykur: farðu lágt. Loftið er skárra við gólf. Skríddu ef þarf.
      3. Þreifaðu á hurð með handarbakinu áður en þú opnar. Heit hurð = eldur hinum megin; veldu hina leiðina.
      4. Notaðu aldrei lyftu. Stigi eða önnur merkt flóttaleið.
      5. Hringdu í 112 þegar þú ert kominn út. Heimilisfang, hvað brennur, hvort einhver er inni.
      6. Farðu á samkomustaðinn og teldu fólkið. Farðu aldrei aftur inn — ekki eftir síma, ekki eftir dýri. Segðu slökkviliði hver vantar og hvar.
      Ef þú kemst ekki út
      1. Lokaðu hurðinni að rýminu og þéttu rifur með fötum eða handklæðum, blautum ef hægt er.
      2. Hringdu í 112 og segðu nákvæmlega hvar í húsinu þú ert.
      3. Farðu að glugga eða út á svalir og láttu sjá þig — veifaðu ljósu klæði. Opnaðu glugga ef reykur kemur ekki inn um hann.
      4. Fjölbýli: ef eldurinn er annars staðar í húsinu og stigagangurinn fullur af reyk: farðu ekki út í reykinn. Vertu í íbúðinni með lokaða hurð, hringdu í 112 og láttu sjá þig við glugga eða á svölum. Ef eldurinn er í þinni eigin íbúð: út, og lokaðu á eftir þér.
      Ef kviknar í fötum
      Stoppaðu, leggstu, rúllaðu. Kæfðu logann á öðrum með teppi eða flík. Kældu svo brunann (B7).
      Eftir eldinn
      • Allir sem önduðu að sér reyk láta skoða sig — reykeitrun kemur fram eftir á. Hósti, höfuðverkur, svimi eða andþyngsli: 112 eða 1700.
      • Farðu ekki inn fyrr en slökkvilið leyfir. Reykur og sót eru eitruð löngu eftir að eldurinn er slökktur.
      • Hafðu samband við tryggingafélagið strax og myndaðu allt áður en hreinsað er (A9).
      • Vanti húsaskjól: Rauði krossinn veitir neyðaraðstoð eftir húsbruna — 1717.

      → Reykskynjarar, slökkvibúnaður og flóttaáætlun eru forsenda þess að þessi kafli gangi upp: sjá A11.

    10. Bráð veikindi
      Einkenni
      Einhver veikist skyndilega og alvarlega. Við lífshættuleg einkenni: 112 strax og fylgdu fyrirmælum neyðarvarðar — hver liður hér að neðan segir hvenær það á við. Skráðu hvenær einkennin byrjuðu. (Slys og áverkar eru í B7. Þessum kafla er skipt eftir ástandi, ekki tíma.)
      Brjóstverkur — grunur um hjartaáfall
      • Merki: þyngsli eða verkur fyrir brjósti sem getur leitt út í handlegg, háls, kjálka eða bak; andþyngsli, kaldur sviti, ógleði. Konur og sykursjúkir fá oft óljósari einkenni.
      • Gerðu: 112. Láttu viðkomandi setjast og hvílast — ekki ganga. Losaðu um þröng föt. Spurðu neyðarvörð um asetýlsalisýlsýru (t.d. Hjartamagnýl): fullorðinn sem er vakandi og ekki með ofnæmi fyrir henni getur fengið 150–300 mg til að tyggja. Sæktu hjartastuðtæki ef það er nálægt. Missi hann meðvitund og hætti að anda eðlilega: hjartahnoð (B7).
      Heilablóðfall
      • Merki — prófið fjögur atriði: Andlit — sígur annað munnvikið þegar viðkomandi brosir? Handleggir — sígur annar þegar báðum er lyft? Tal — þvoglumælt eða ruglingslegt? Tími — eitt merki dugar: 112 strax.
      • Gerðu: 112 og segðu „grunur um heilablóðfall“. Skráðu klukkan hvað einkennin byrjuðu — meðferðin er háð því. Ekkert að borða eða drekka. Einkenni sem ganga yfir eru líka neyðartilvik.
      Bráðaofnæmi
      • Merki: bólga í vörum, tungu eða hálsi, öndunarerfiðleikar, svimi eða yfirlið — oft mínútum eftir mat, lyf eða stungu. Útbrot fylgja oft en ekki alltaf.
      • Gerðu: 112. Eigi viðkomandi adrenalínpenna: notaðu hann strax, utanvert á mitt læri, í gegnum föt ef þarf. Leggðu viðkomandi niður, gjarnan með fætur hátt; sitjandi ef hann á erfitt með að anda. Láttu hann ekki standa upp eða ganga. Engin breyting eftir um 5 mínútur og annar penni til: gefðu hann.
      Flog (krampi)
      • Gerðu: verðu höfuðið, færðu hluti frá, taktu tímann. Ekki halda viðkomandi og ekkert í munninn. Þegar krampinn hættir: hliðarlega og vertu hjá honum.
      • 112 ef: krampinn varir lengur en 5 mínútur, endurtekur sig, er sá fyrsti hjá viðkomandi, hann vaknar ekki á eftir, slasaðist, er barnshafandi eða með sykursýki.
      Sykurfall
      • Merki hjá einstaklingi með sykursýki: skjálfti, sviti, fölvi, ruglingur, óvenjuleg hegðun.
      • Gerðu: vakandi og getur kyngt — sykur strax: þrúgusykur, sætur safi eða gos (ekki sykurlaust), um 15–20 g. Mældu blóðsykur ef mælir er til. Endurtaktu eftir 15 mínútur ef ekki lagast; lagist það ekki þá: 1700 eða 112. Sljór eða meðvitundarlaus: ekkert í munninn, hliðarlega, 112.
      Astmakast / andnauð
      • Gerðu: láttu viðkomandi sitja uppréttan og halla sér fram, hjálpaðu honum að nota eigið innöndunarlyf, haltu ró. 112 ef lyfið virkar ekki, hann getur ekki talað heilar setningar eða varirnar blána.
      Eitrun
      • Gerðu: 112 ef viðkomandi er sljór, á erfitt með að anda eða er með krampa. Annars Eitrunarmiðstöð Landspítala: 543 2222 (allan sólarhringinn). Hafðu umbúðirnar við höndina. Ekki framkalla uppköst. Efni í auga eða á húð: skolaðu lengi með vatni.
      • Kolmónoxíð: höfuðverkur, svimi og ógleði hjá fleiri en einum samtímis innandyra — allir út í ferskt loft strax, svo 112. Farðu ekki inn aftur.
      Þegar hjálp tefst
      Haltu viðkomandi heitum og rólegum, fylgstu með meðvitund og öndun, skráðu tíma og breytingar. Vafasöm en ekki bráð veikindi: 1700 — sími og netspjall.

      → Lyfjalisti og lyfjabirgðir: A8. Veikindi þegar hjálp er dögum í burtu: C13.

    11. Farsótt og sóttkví
      Einkenni
      Sóttvarnalæknir og almannavarnir tilkynna um útbreiðslu smitsjúkdóms. Ólíkt öðru í þessum hluta gerist þetta á vikum, ekki mínútum — og ógnin er ekki að þjónusta rofni heldur að margir veikist í einu og að heimili þurfi að halda sig heima.
      Fyrstu dagarnir
      1. Ein heimild: fylgdu fyrirmælum sóttvarnalæknis og almannavarna. Smitleiðir og ráðleggingar eru ólíkar eftir sjúkdómum — það sem gilti síðast gildir ekki endilega núna.
      2. Handþvottur með sápu í minnst 20 sekúndur — fyrir mat, eftir salerni, eftir að komið er heim. Handspritt þegar vatn og sápa eru ekki við höndina.
      3. Hóstaðu og hnerraðu í olnbogabót eða pappír. Vertu heima ef þú ert veikur.
      4. Loftaðu út. Notaðu grímu þar sem og þegar mælt er með.
      5. Farðu yfir birgðir: getur heimilið verið heima í eina til tvær vikur án verslunarferðar? Matur, lyf, hitalækkandi, hreinlætisvörur (A8, A12). Kauptu rólega inn í það sem vantar — ekki hamstra.
      Ef einhver á heimilinu veikist
      1. Sérherbergi og helst sér salerni ef hægt er. Einn annast þann veika — ekki allir.
      2. Sér handklæði, glas og hnífapör. Strjúktu yfir sameiginlega snertifleti daglega.
      3. Vökvi, hvíld og hitalækkandi samkvæmt umbúðum. Mældu hita og skráðu daglega.
      4. Loftaðu herbergið. Þvoðu hendur eftir hverja umönnun.
      Sóttkví eða einangrun heima (þegar hún er ráðlögð eða fyrirskipuð)
      • Haltu þig heima og hafðu bein samskipti við sem fæsta. Fáðu aðföng send eða borin að dyrum — þetta er verkefni fyrir neyðarvinina (A5).
      • Haltu rútínu: fótaferð, máltíðir, hreyfing, samband við fólk í síma. Einangrun reynir meira á hugann en líkamann (C14).
      Leitaðu hjálpar strax — 112 — ef
      • Öndun verður erfið eða hröð, eða varir blána
      • Verkur eða þyngsli fyrir brjósti
      • Nýtilkominn ruglingur, eða erfitt að vekja viðkomandi
      • Viðkomandi heldur engum vökva niðri eða hættir að pissa
      Annars: 1700 eða netspjall Heilsuveru áður en þú mætir á heilsugæslu eða bráðamóttöku — svo þú smitir ekki biðstofuna.

      → Bólusetningar samkvæmt ráðleggingum eru undirbúningurinn sem skiptir mestu. Hreinlæti án rennandi vatns: C8. Vökvatap og hiti: C13.

    12. Skriður, jökulhlaup og sjávarflóð
      Einkenni
      Þrjár vár sem eiga eitt sameiginlegt: viðbragðið er að fara strax upp eða til hliðar — og aldrei að fara og skoða.
      • Skriður og grjóthrun: fylgja úrhelli, asahláku og jarðskjálftum. Fyrirboðar: nýjar sprungur í hlíð, lækir sem gruggast eða breyta sér skyndilega, drunur, grjót á ferð.
      • Jökulhlaup: fylgja eldgosum og jarðhita undir jökli — þekktust frá Kötlu, Grímsvötnum, Öræfajökli og Skaftárkötlum. Fyrirboðar: tilkynning í síma, brennisteinslykt við jökulár, ört vaxandi og gruggugt vatn.
      • Sjávarflóð og flóðbylgjur: sjávarflóð fylgja djúpum lægðum á stórstraumi. Flóðbylgja getur fylgt mjög hörðum skjálfta við strönd eða stórri skriðu eða berghlaupi í sjó eða lón.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Skriða: færðu þig burt úr farveginum — þvert á fallstefnuna, ekki undan henni niður brekkuna. Komistu ekki út: efsta hæð, sú hlið hússins sem snýr frá hlíðinni.
      2. Jökulhlaup: fylgdu rýmingaráætlun svæðisins tafarlaust — á hærra land eða á tilgreindan söfnunarstað. Farðu ekki út á aura, yfir brýr eða eftir vegum í farvegi hlaupsins. Hlaup fer hraðar en maður hleypur.
      3. Flóðbylgja: ef sjórinn dregst óvenju langt út, skjálftinn var svo harður að erfitt var að standa, eða þú sérð skriðu falla í fjörð eða lón: upp og inn í land strax. Ekki bíða eftir viðvörun — náttúran er viðvörunin.
      4. Sjávarflóð með fyrirvara: færðu bíla og verðmæti frá sjó, upp úr kjöllurum. Haltu þig frá sjóvarnargörðum og bryggjum — brim hrífur fólk með sér.
      Fyrsta klukkustundin
      1. 112 ef fólk er í hættu eða saknað. Láttu vita hvað þú sást og hvar.
      2. Rás 2, vedur.is og almannavarnir.is. Á ferðalagi: umferdin.is og 1777 um lokanir.
      3. Haltu þig á öruggum stað. Fyrsta skriðan er sjaldan sú eina og fyrsta aldan sjaldan sú stærsta.
      4. Athugaðu nágranna og ferðafólk sem þekkir ekki svæðið.
      Viðvarandi ástand
      • Farðu ekki inn á skriðusvæði eða í farveg til að skoða eða bjarga munum — hlíðin er óstöðug dögum saman eftir úrhelli.
      • Vegir og brýr geta verið rofin og sveitir einangraðar: sjá B1, B2 og B5 eftir því sem við á.
      • Flóðvatn er mengað — af örverum og oft olíu eða öðrum efnum. Drekktu það aldrei. Sjóddu neysluvatn ef veitan ráðleggur það (C1); suða hjálpar ekki gegn efnamengun. Þvoðu hendur eftir alla snertingu við flóðvatn.
      Rýming / hjálp
      Á skilgreindum hættusvæðum gilda rýmingarfyrirmæli lögreglustjóra án tafar (B8). Tjón af skriðuföllum og vatnsflóðum er bótaskylt hjá NTÍ ef eignin er brunatryggð — myndaðu allt áður en þú hreinsar og tilkynntu (A9).

      → Búirðu eða áttu sumarhús undir hlíð, við jökulá eða við sjó: kynntu þér hættumat og rýmingaráætlun svæðisins núna. Það er A-verkefni.

    13. Gróðureldar
      Einkenni
      Reykur eða eldur í sinu, lyngi, kjarri eða skógi — oftast að vori eða í langvarandi þurrki, og oftast af mannavöldum. Gróðureldur breiðist út með vindi á hraða sem kemur á óvart og hættan er mest í sumarhúsabyggð þar sem gróður er þéttur og flóttaleiðir fáar.
      Fyrstu 10 mínúturnar
      1. Hringdu í 112 og lýstu staðsetningu og staðháttum. Aðstoð má alltaf afturkalla — eld sem fær forskot ekki.
      2. Láttu fólk í nágrenninu vita — bankaðu upp á í næstu húsum.
      3. Eigið öryggi fyrst. Reykur frá gróðureldi getur verið lífshættulegur.
      4. Lítill eldur sem þú ræður við: aðeins ef undankomuleiðin er opin. Sæktu að honum með vindinn í bakið, sláðu með klöppu eða skóflu og bleyttu. Farðu aldrei inn í reykinn. Ráðirðu ekki við hann strax: hættu og farðu.
      Að komast undan
      1. Eldur fer hraðast undan vindi. Farðu að öllu jöfnu þvert á vindáttina og út úr reyknum — aldrei gegnum reyk og aldrei leið sem eldurinn getur lokað.
      2. Eldur fer miklu hraðar upp brekku en niður. Farðu niður í móti frekar en upp ef báðar leiðir eru opnar.
      3. Leitaðu á gróðurlaust svæði: veg, mel, áreyrar, vatn eða land sem þegar er brunnið.
      4. Farðu snemma á bíl. Keyrðu ekki inn í þéttan reyk — þú sérð hvorki veg né fólk.
      5. Farðu úr reyknum — það er eina örugga vörnin. Þétt agnasíugríma (FFP2) dregur úr reykögnum en ekki gasi; klútur fyrir vit hjálpar lítið. Föt úr ull eða bómull verja betur en gerviefni, sem bráðna.
      Fyrsta klukkustundin
      • Fylgdu fyrirmælum lögreglu og slökkviliðs um rýmingu og lokanir. Rás 2.
      • Tími til og eldurinn fjarri: lokaðu gluggum og hurðum, færðu gaskúta og eldfimt frá húsinu og bleyttu gróður næst því. Svo ferðu.
      • Leggðu bílum þannig að þeir loki ekki vegum fyrir slökkviliði.
      Viðvarandi ástand
      • Eldur getur leynst í mosa og jarðvegi og blossað upp aftur dögum síðar. Farðu ekki inn á brunnið svæði fyrr en slökkvilið hefur aflétt.
      • Reykur berst langt: lokaðu gluggum og haltu börnum og lungnaveikum inni.
      Forvarnir — það sem kemur í veg fyrir þennan kafla
      • Í þurrki: enginn opinn eldur, engin einnota grill, engir flugeldar. Sinubrenna er óheimil án leyfis.
      • Sumarhús: haltu gróðri í lágmarki næst húsinu (öryggissvæði um 1,5 m, lengra niður brekku), geymdu ekki eldivið, gaskúta eða bensín undir verönd, og hafðu klöppur, skóflu og greiðan aðgang að vatni.
      • Þekktu tvær leiðir burt úr sumarhúsahverfinu.

      → Eldvarnir innandyra: A11. Rýming: B8.

    Heim

    C · Kunnátta til langtíma

    Tekur við þegar ástand endist lengur en 72 tíma og kerfin standa ekki undir sér. Þetta efni lærist fyrirfram — ekki í myrkri.

    Prenta þennan hluta
    1. Vatn — öflun og hreinsun

      Án vatns endist fólk aðeins í fáeina sólarhringa — skemur í veikindum og við áreynslu. Á Íslandi er oftast stutt í vatn þegar birgðirnar klárast; spurningin er hvort það sé öruggt.

      Hvar er vatn þegar kranarnir þorna

      1. Inni í húsinu: kaldavatnslagnir (opnaðu hæsta krana til að hleypa lofti, tappaðu af þeim lægsta), hitakútur sem hitar kalt neysluvatn (algengur í rafkyntum húsum og sumarhúsum — tugir lítra, tappað af botnventli) og klósettkassinn (kassinn, ekki skálin — ef engin hreinsiefni eru í honum). Aldrei vatn úr ofnakerfi eða hitaveitu — það er ekki neysluvatn.
      2. Úti: lækir, ár, lindir, regnvatn, snjór. Á Íslandi er lindarvatn og vatn ofan byggðar oft gott — en sjáanlegt hreint er ekki sama og öruggt. Taktu rennandi vatn fram yfir kyrrstætt, ofan byggðar og beitilands fram yfir neðan.

      Hreinsun, í forgangsröð

      1. Sía fyrst gruggugt vatn gegnum þéttofinn klút eða kaffipoka, eða láttu það setjast og helltu ofan af — hreinsar agnir, ekki örverur.
      2. Suða er gullaðferðin: kröftug suða í 1 mínútu drepur örverur sem valda sjúkdómum. Ekkert mælitæki þarf. Suða hreinsar ekki efnamengun (sjá varúð).
      3. Klór til vara: 2 dropar af venjulegum heimilisklór án ilmefna og þykkingarefna (5–9% natríumhýpóklórít — lestu styrkinn á brúsanum) í hvern lítra, hrista, bíða 30 mínútur. Dauf klórlykt á að finnast; annars bættu við öðrum skammti og bíddu 15 mínútur í viðbót. Tvöfaldaðu skammtinn fyrir gruggugt eða mjög kalt vatn. Sé styrkurinn annar eða ómerktur: sjóddu frekar.
      4. Ferðasíur: flestar sía bakteríur og sníkjudýr en ekki veirur — lestu merkinguna og sjóddu ef þú ert í vafa.
      5. Snjór: bræddu hann alltaf fyrst — að éta snjó kælir líkamann og kostar meiri orku en vatnið gefur.

      Geymsla á hreinsuðu vatni: í hreinum, lokuðum ílátum. Helltu úr þeim — ekki dýfa bollum eða höndum ofan í.

      ⚠ Suða og klór vinna á örverum, ekki á efnamengun — eldsneyti, olíu, eiturefnum, ösku í miklu magni eða geislavirkum efnum. Vatn með efnalykt eða olíubrák er ónothæft, sama hvað þú gerir við það. Skólpmengað vatn notarðu ekki ef annað býðst. Jarðhitavatn er ekki drykkjarvatn.

    2. Eldur

      Eldur er hiti, soðið vatn og eldaður matur — en hann fyrirgefur ekki kæruleysi. Kveiktu hann úti, haltu honum litlum, slökktu hann alveg.

      Að kveikja eld sem lifir

      1. Staðarval: í skjóli fyrir vindi, á möl, sandi eða berri jörð, fjarri gróðri og byggingum. Hlaðinn skjólgarður úr steinum heldur hita og ver loga.
      2. Þrjú þrep eldsmatar — safnaðu öllu áður en þú kveikir:
        • Tundur: það fínasta sem logar af neista — næfurþurr sina, birkibörkur, fitug bómull, pappír, spænir
        • Smáviður: blýants- til fingurgildir þurrir kvistir
        • Eldiviður: handleggsgildur viður, bætt á smám saman
      3. Þurrasti viðurinn í blautu veðri er dauðir kvistir sem hanga enn á trjám og innviður klofinna greina — ekki það sem liggur á jörðinni.
      4. Kveiktu í tundrinu vindmegin, leyfðu loganum að éta sig upp í smáviðinn, bættu rólega á. Of mikið of snemma kæfir eld.
      5. Eldfæri á þremur stöðum (vasi, taska, birgðir) — kveikjari er ódýrasta og nytsamlegasta neyðartækið sem til er.

      ⚠ Aldrei opinn eld eða glóðartæki innandyra, í tjaldi eða lokuðu rými — kolmónoxíð drepur hljóðlaust. Slökktu með vatni eða sandi og hrærðu í glóðinni þar til hún er köld viðkomu. Á Íslandi getur gróðureldur í sinu breiðst út á hlaupahraða — í þurrki kveikirðu ekki eld í gróðri (sjá B13).

    3. Skjól

      Í íslensku veðri er röðin skjól → vatn → matur. Vindkæling og bleyta draga úr fólki á klukkustundum; hungur á dögum.

      Forgangsröð skjóls

      1. Nýttu það sem er byggt: hús, sumarhús, útihús, fjallaskáli, bíllinn. Lélegt hús slær glæsilegt neyðarskýli nánast alltaf út. Bíll ver fyrir vindi og bleytu — en er kaldur málmkassi; einangraðu þig frá sætum og gólfi með teppum.
      2. Úti — þrjár reglur: vörn gegn vindi, einangrun frá jörðinni (jörðin stelur meiri hita en loftið — lag af greinum, lyngi eða farangri undir þig), og lítið rými sem líkamshitinn ræður við að verma.
      3. Hleðsla eða skjólveggur: steinar, torf eða snjór hlaðið í vegg vindmegin við dæld eða stórgrýti — einfaldasta skjólið og oft það besta á skóglausu landi.
      4. Snjór sem byggingarefni: grafin hola í skafl, lokuð með farangri eða snjókögglum, rúmar manneskju og heldur kringum frostmark inni þótt frjósi úti. Alltaf loftgat — haltu því opnu — og merktu innganginn. Snjóskýli getur fallið saman eða fennt í kaf: neyðarúrræði, ekki fyrsta val.

      ⚠ Blautur = kaldur. Skiptu um föt áður en þú kólnar, ekki eftir. Svitnaðu ekki í skjólgerðinni — opnaðu klæðnað meðan þú vinnur. Í hvítamyrkri eða blindbyl: hreyfðu þig ekki — gerðu skjól þar sem þú ert og bíddu veðrið af þér.

    4. Rötun án GPS

      Átt + stefnufesta slá hraða alltaf út. Sá sem veit í hvaða átt hann fer og heldur henni kemst á leiðarenda; sá sem flýtir sér stefnulaust gengur í hringi.

      Að finna áttir

      1. Sólin, gróft: rís í austurátt, er í suðri um hádegi, sest í vesturátt. Á Íslandi hliðrast upprás og sólsetur mikið eftir árstíðum (hásumar: rís í norðaustri, sest í norðvestri) — hádegissuðrið er áreiðanlegasta viðmiðið. Athugaðu að sólarhádegi á Íslandi er ekki klukkan 12 heldur um kl. 13–13:30 — fyrr austanlands, seinna vestanlands.
      2. Skuggaaðferðin: stingdu priki lóðrétt niður, merktu enda skuggans, bíddu 15–20 mínútur, merktu aftur. Línan milli merkjanna liggur vestur→austur (fyrra merkið er vestur). Þvert á hana: norður–suður.
      3. Pólstjarnan = norður, alltaf: finndu Karlsvagninn, taktu tvær fremstu stjörnur skálarinnar og framlengdu línuna milli þeirra um fimmfalda vegalengd — þar er Pólstjarnan. Hún stendur hátt á himni á Íslandi (um 65° yfir sjóndeildarhring); norður er á jörðinni beint undir henni.
      4. Landið sjálft: ár renna til sjávar og á Íslandi liggur byggð við strendur og í dölum — að fylgja vatni niður á við leiðir oftast í átt til byggðar, en ár geta líka leitt í ófær gil: fylgdu stefnunni, ekki bakkanum. Lærðu kennileiti þíns svæðis í björtu: fjöll, línuvegi, raflínur (raflínur liggja milli mannvirkja — en oft langar leiðir um óbyggðir).

      Að halda stefnu

      Veldu kennileiti í þinni átt, gakktu að því, veldu það næsta — aldrei „tilfinninguna“. Í þoku eða myrkri án kennileita: bíddu frekar en að ganga. Líttu reglulega um öxl — leiðin til baka lítur öðruvísi út.

      ⚠ Mosa-vex-norðanmegin og aðrar þumalputtareglur um gróður eru óáreiðanlegar á Íslandi. Áttaviti úr A-búnaðinum gerir allan þennan kafla auðveldari — lærðu á hann í rólegheitum, og eigðu pappírskort af þínu svæði (A9).

    5. Matur — öflun og meðferð

      Hungur er óþægilegt en hættulaust dögum saman — eitrun og iðrasýking í neyðarástandi geta verið lífshættulegar. Öruggt og leiðinlegt vinnur alltaf.

      Röðin á matnum sem til er

      1. Fyrst viðkvæmt úr kæli → svo úr frysti meðan kalt er → síðast dósir og þurrmatur. Þannig tapast minnst.
      2. Fjögurra tíma reglan: eftir meira en um 4 klst rafmagnsleysi er kælivara (kjöt, fiskur, mjólkurvörur, afgangar) ekki lengur örugg — nema hún hafi sannanlega haldist við 4°C eða kaldara. Frosinn matur sem enn er með ískristöllum má elda eða frysta aftur.
      3. Geymsla án kælis: kaldasti, dimmasti og þurrasti staður hússins — geymsla, bílskúr, norðurgluggakista. Úti að vetri má kæla mat í lokuðum ílátum, vörðum fyrir fuglum og músum — en aðeins ef hitinn helst undir 4°C. Notaðu hitamæli; útihiti sveiflast hratt og sól hitar ílát þótt frost sé.
      4. Eldað umfram: kældu hratt og borðaðu sem fyrst. Lyktar- og útlitspróf er lágmarkssía, ekki trygging — í vafa: hentu því.

      Öflun ef ástandið dregst

      1. Fjaran er matarkista Íslands: kræklingur, beitukóngur, söl og annar þari, fiskur. ⚠ Skelfiskur getur borið eiturþörunga árstíðabundið — suða eyðir ekki þörungaeitri. Slepptu skelfiski alfarið ef viðvörun hefur verið í gangi eða ef þú veist ekki stöðuna á svæðinu.
      2. Landið: ber (ágúst–september), fjallagrös, hvönn, njóli. Járnregla: borðaðu aðeins það sem þú þekkir 100%. Á Íslandi eru fáar banvænar plöntur en þær eru til — óvissa = ekki borða.
      3. Veiði (silungur í vötnum, fugl) er orkudæmi: hún þarf að gefa meiri orku en hún kostar — og hún er bundin leyfum og veiðirétti (sjá C9).
      4. Vafasamur matur er verri en enginn: heilbrigður fullorðinn þolir matarleysi í sólarhring eða tvo með nægu vatni. Börn, barnshafandi konur og fólk með sjúkdóma á borð við sykursýki þola það verr — leitaðu aðstoðar snemma.

      ⚠ Aldrei sveppi í neyðarástandi — ávinningurinn (nánast engin orka) réttlætir aldrei áhættuna. Vatn gengur fyrir mat: sé vatn af skornum skammti skaltu forðast saltan og mjög þurran mat, sem eykur þorstann.

      → Hve lengi matur endist í raun: sjá C10. Verkun og geymsla án kælis: sjá C11.

    6. Orka og rafmagn

      Í langvarandi rafmagnsleysi áttu ekki rafmagn — þú átt rafhlöður. Leikurinn snýst um að eyða þeim hægar og fylla á þær þar sem hægt er.

      Eyða hægar

      1. Einn sími á, hinir af. Heimilið þarf eina neyðarlínu, ekki fjórar. Hinir símarnir eru varabirgðir, slökktir, ekki í biðstöðu.
      2. Síminn sem er á: lágmarksbirta og straumsparnaður. Flugstilling sparar mest en þá berast engin boð — kveiktu á sambandi á föstum tímum, t.d. á heila tímanum. Kuldi tæmir rafhlöður — hafðu símann innan klæða.
      3. Ljós forgangsraðast: höfuðljós við vinnu, eitt kerti í setustofu, myrkur þar sem enginn er.

      Fylla á

      1. Bíllinn er hleðslustöð heimilisins: hann hleður síma og hleðslubanka um USB/12V. Bensín- eða dísilbíll í lausagangi: ⚠ aðeins utandyra — aldrei í bílskúr — og púströrið frítt af snjó. Stuttar lotur duga; lausagangur klukkustundum saman sóar eldsneyti. Rafbíll hleður síma án útblásturs og sumir geta knúið heimilistæki.
      2. Rafhlöður verkfæra (borvéla o.fl.) geyma mikla orku — USB-millistykki á þær fást ódýr og breyta verkfærakassanum í orkubanka.
      3. Sólarhleðslur virka á Íslandi á sumrin, lítið að vetri — viðbót, ekki grunnur.
      4. Sveifar- og sólarútvarp með USB-úttaki býr til sína eigin orku — lítið, en nóg til að hlusta. Þess vegna er það á A2-listanum.

      ⚠ Bensín- og dísilrafstöðvar aðeins utandyra, minnst 6 metra frá gluggum, hurðum og loftinntökum, með útblásturinn frá húsinu — og kolmónoxíðskynjari inni. Tengdu rafstöð aldrei beint inn á húskerfið án skiptirofa sem rafvirki setur upp; „backfeed“ getur drepið viðgerðarfólk veitunnar.

    7. Hiti án hitaveitu

      Þú hitar ekki húsið — þú hitar fólkið. Minnka rýmið, einangra það, safna líkamshita og verja hann með lögum.

      Aðferðirnar, í röð

      1. Minnkaðu rýmið: allir í „hlýja herbergið“ (A3). Lokaðu öllum öðrum hurðum. Lítið rými + nokkrir líkamar = margar gráður.
      2. Einangraðu rýmið: teppi eða sængur fyrir glugga (mesta hitatapið), handklæði í hurðarfals, dýnur upp að útveggjum ef kalt er í gegn.
      3. Tjald innandyra er leynivopnið: tjald eða virki úr sængum inni í herberginu býr til örloftslag sem líkamshitinn hitar auðveldlega. Börnum finnst það ævintýri — sem er líka gott fyrir líðanina (A7).
      4. Lög af fötum: þunnt ullarlag innst, loftrými á milli, vindþétt yst. Húfa innandyra er ekki hallærisleg — óvarið höfuð lekur hita. Skiptu um sokka; þurrir sokkar eru hiti.
      5. Heitt í kroppinn og í rúmið: heitir drykkir og súpa af prímusnum (úti!), heitt vatn — ekki sjóðandi — í hitapoka eða flösku sem þolir það, vafið í handklæði, í svefnpokann við fæturna.
      6. Hreyfing framleiðir hita — en svitnaðu ekki; raki í fötum er hitaþjófur.
      7. Húsið sjálft: stefni það undir frostmark þarf að verja lagnirnar — sjá C15.

      ⚠ Þetta drepur: kolagrill, prímus, gashitari eða rafstöð innandyra = kolmónoxíðeitrun. Engin undantekning, ekki „bara smá stund“. Kerti gefa nánast engan hita; þau eru ljós. Áfengi „hitar“ ekki — það víkkar æðar og hraðar hitatapi.

    8. Hreinlæti

      Í langvarandi neyðarástandi eru iðrasýkingar og sýkt sár hættulegri en flest annað. Hreinlæti er ekki þægindi — það er sjúkdómavörn númer eitt.

      Forgangsröðin

      1. Hendur, hendur, hendur: fyrir mat og eftir salerni, undantekningalaust. Sápa og vatn er fyrsta val — lítil skál og skömmtuð skol duga — og eina valið þegar hendur eru sýnilega óhreinar. Handspritt (minnst 60% alkóhól) þegar vatn er dýrmætt. Flest iðraveikindi í hamförum ferðast með höndum.
      2. Neyðarsalerni: sterkur poki í klósettskálina (eða fötu með setu), þurrefni yfir eftir hverja notkun — sag, kattasandur, mold eða rifinn pappír draga úr lykt og halda flugum frá. Bindið fyrir, geymið lokaða poka í íláti með loki utandyra, fjarri matargeymslu og minnst 30 metra frá vatnsbóli eða læk.
      3. Líkamsþvottur í skömmtum: blautklútar eða þvottapoki og skál — andlit, hendur, handarkrikar, klof, fætur, í þeirri röð. Dagleg regla fremur en sjaldgæft heildarbað.
      4. Sár: skolað strax með hreinasta vatni sem til er, hulið hreinu, skipt daglega. Roði sem breiðist út, hiti eða vessi = sýking á leið — 1700/112 eftir alvarleika (sjá C13).
      5. Tíðavörur og bleyjur: í birgðunum (gátlistinn, hreinlætisvörur) og í sorpkerfinu hér — lokaðir pokar eins og salernisúrgangur.
      6. Uppvask án rennandi vatns: skafa → þvo í skál → skola í annarri. Diskar þorna í lofti, ekki í tusku.
      7. Tennur: burstaðar með soðnu eða hreinsuðu vatni. Tannpína án tannlæknis er verri en hún hljómar.

      ⚠ Úrgangur og sorp sem safnast upp innandyra dregur að meindýr og sjúkdóma á dögum — útikerfið er ekki valkvætt. Deildu aldrei tannbursta, rakvél eða handklæði í veikindum.

    9. Veiði og veiðibúnaður

      Veiðigeta verður til á friðartímum. Leyfi, búnaður og æfing eru A-verkefni — í neyð notarðu aðeins það sem þú kannt nú þegar.

      Leyfin fyrst — þau fást ekki í neyð

      1. Skotvopnaleyfi: námskeið og umsókn hjá lögreglu. Ferlið tekur vikur — og það er eðlilegt; þannig á það að vera.
      2. Veiðikort þarf fyrir veiðar á villtum fuglum og spendýrum — endurnýjað árlega. Hreindýraveiði er sérleyfi.
      3. Stangveiði: í sjó frá landi er almennt öllum heimil; ár og vötn eru háð leyfi veiðiréttarhafa.

      Búnaður, í orkuröð (sjá C5 — veiði er orkureikningur)

      1. Net veiða á meðan þú sefur — en netaveiði í vötnum er bundin veiðirétti og reglum. Leggðu aldrei net án heimildar veiðiréttarhafa; að semja um það fyrirfram er A-verkefni. Net, línur og önglar taka lítið pláss í búnaðinum.
      2. Stöng og lína: einföld, viðhaldslétt, virkar í sjó og vatni. Lærðu hnútana og handtökin núna, ekki þá.
      3. Skotvopn er sérhæfðasta tækið — fugl og stærri bráð. Krefst leyfis, skotfæra og reglulegrar æfingar, og skilar aðeins þeim sem kann.

      Geymsla og meðferð — líka í neyð

      • Skotvopn í læstum vopnaskáp, skotfæri geymd aðskilin. Lög um skotvopn gilda jafnt í neyðarástandi.
      • Grunnreglur alltaf: farðu með hvert vopn eins og það sé hlaðið, beindu hlaupi aldrei að neinu sem ekki má skjóta, hlaðið aðeins á veiðistað.
      • Æfing er öryggisatriði: óæfður skotveiðimaður er hættulegri sjálfum sér og öðrum en bráðinni.

      Aflinn: gerðu að honum strax, kældu og eldaðu í gegn. Geymsla umfram daginn: sjá C11.

      ⚠ Þessi kafli fjallar um matvælaöflun, ekkert annað. Vopn „til varnar“ er allt annað mál — lagalega og öryggislega — og utan efnis þessa apps. Veiðivopn, veiðinotkun, lögleg geymsla.

    10. Geymsluþol matar

      Dagsetningin á umbúðunum segir sjaldnast hvenær maturinn verður hættulegur. Rétt geymd þurrvara og dósamatur endast árum saman — sumt áratugum. Það sem skemmir mat er hiti, raki, súrefni og ljós, ekki dagatalið.

      Tvær merkingar — tvær ólíkar merkingar

      • „Best fyrir“ er gæðaloforð framleiðanda: fram að þeim degi ábyrgist hann bragð, áferð og útlit. Eftir hann má borða vöruna ef hún hefur verið geymd rétt og umbúðir eru heilar. Skoðaðu, lyktaðu, smakkaðu — skynfærin duga til að meta gæði þurrvöru. Þau duga ekki á kælivöru eða niðursoðinn mat (sjá neðar).
      • „Síðasti notkunardagur“ er öryggismörk: sett á viðkvæma kælivöru (ferskt kjöt, fisk, tilbúna rétti) þar sem hættulegar örverur geta fjölgað sér án þess að það sjáist. Ekki borða eftir þann dag.

      Hve lengi endist hvað — við svala, þurra, dimma geymslu í heilum umbúðum

      MaturRaunhæft geymsluþolAthugasemd
      Salt, sykurÓtakmarkað ef þurrtLokað ílát; kekkir skipta engu
      HunangÓtakmarkað í lokuðu ílátiKristallast — velgja í vatnsbaði. Ekki handa börnum undir eins árs
      Hvít hrísgrjón, heilt hveitikorn, valsaðir hafrar, pastaMörg ár í búðarumbúðum; áratugi (allt að um 30 ár) loftþétt, súrefnissnautt og svaltÞola illa raka og skordýr; gæðin dala með tímanum
      Þurrkaðar baunir og linsurMörg ár; áratugi loftþéttHarðna með aldri — lengri suða, og mjög gamlar mýkjast stundum ekki
      Hvítt hveiti1–2 ár, lengur loftþétt
      Hýðishrísgrjón, heilhveiti, hnetur, fræ6–12 mánuðirFitan þránar — fita er veiki hlekkurinn
      Matarolía1–2 ár óopnuðÞránar í hita og ljósi
      Dósamatur, sýrulítill (kjöt, fiskur, baunir, grænmeti)Bestur í 2–5 ár; öruggur mun lengur ef dósin er heil og geymd svalt og þurrtSjá „Hentu án þess að smakka“
      Dósamatur, súr (tómatar, ávextir)Bestur í 12–18 mánuðiSýran vinnur á dósinni
      Fitulaus þurrmjólkMörg ár loftþéttFeit þurrmjólk mun skemur
      Frostþurrkaður maturSamkvæmt merkingu, oft áratugi
      HarðfiskurMánuðir á svölum, þurrum stað; lengur í frystiFeitur fiskur þránar fyrr
      Kaffi, te, kryddÁrMissa bragð, ekki öryggi — nema raki komist að
      UngbarnablandaAðeins fram að dagsetninguUndantekningin: næringargildið er ekki tryggt eftir hana

      Hentu án þess að smakka

      • Dós sem er bólgin, lek, ryðguð í gegn eða djúpt beygluð á samskeytum
      • Dós eða krukka sem spýtir vökva eða froðu við opnun
      • Mygla, ólykt eða óeðlilegur litur

      Bótúlíneitur — það hættulegasta sem leynist í niðursoðnum mat — er lyktar- og bragðlaust. Þess vegna er reglan um bólgnar dósir undantekningalaus.

      Að geyma til langs tíma

      1. Svalt, þurrt, dimmt — og frá gólfi. Því svalara og jafnara hitastig, því lengra geymsluþol; köld geymsla slær eldhússkáp út.
      2. Loftþétt: matvælafötur með þéttu loki, glerkrukkur eða álþynnupokar (mylar) með súrefnisgleypi fyrir þurrvöru sem á að endast áratugi. Venjulegir plastpokar halda ekki súrefni frá.
      3. Aðeins þurr og fitulítil vara í súrefnissnauða geymslu. Rök vara í loftþéttu íláti er uppskrift að bótúlisma.
      4. Merktu allt með innihaldi og dagsetningu. Elsta fremst, nýjasta aftast.
      5. Borðaðu úr búrinu (A12): geymsla sem aldrei er snert er geymsla sem enginn veit hvort virkar.

      → Þegar frystirinn er farinn og geyma þarf nýjan afla eða uppskeru: sjá C11.

    11. Gömlu geymsluaðferðirnar

      Íslendingar geymdu mat í þúsund ár án rafmagns. Allar aðferðirnar gera það sama: gera örverum ólíft — með því að taka frá þeim vatnið, sýra umhverfið eða kæla það. Og allar krefjast nákvæmni — hálfkláruð verkun er verri en engin.

      Aðferðirnar

      1. Þurrkun: vatnið fjarlægt. Fiskur og magurt kjöt í þunnum ræmum eða flökum, hengt í köldum, þurrum trekki, varið fyrir flugum og regni. Kuldinn heldur matnum öruggum á meðan hann þornar — þetta er vetrar- og vorverk, ekki sumarverk. Hart í gegn er lágmark, ekki sönnun: slepjulegt, myglað eða illa lyktandi fer í ruslið.
      2. Söltun: salt dregur út vatn. Þurrsöltun (fiskur eða kjöt lagt í lögum með miklu grófu salti) eða pækill. Fylgdu prófaðri aðferð með vigtuðu salti og haltu matnum köldum á meðan — of lítið salt er verra en ekkert. Útvatnað fyrir neyslu.
      3. Reyking: gefur bragð og ver yfirborðið, en reykur einn og sér geymir ekki mat. Hefðbundin reyking er alltaf söltun fyrst, reyking svo. Kaldreykt vara er ekki elduð; heitreykt er elduð en geymist stutt án kælis.
      4. Súrsun: sýra heldur örverum niðri — ef hún er nógu sterk. Fylgdu prófaðri uppskrift og þynntu ekki edikið umfram hana. Í mysu (slátur, sviðasulta — hefðin), í ediki (grænmeti, síld) eða með gerjun í salti (súrkál). Maturinn þarf að vera á kafi.
      5. Sykur: sulta og saft úr berjum. Soðið eftir prófaðri uppskrift með nægum sykri, sett heitt á hreinar, heitar krukkur og lokað strax. Geymt svalt. Mygluð sulta fer í ruslið — ekki skafa ofan af.
      6. Kuldi án rafmagns: frost og snjór að vetri — ef hitinn helst stöðugt undir 4°C (C5); köld, dimm geymsla eða jarðhýsi fyrir kartöflur og rótargrænmeti, sem geymast þar mánuðum saman.

      Hvað hentar hverju

      HráefniFyrsta valAthugasemd
      Magur fiskur (þorskur, ýsa)Þurrkun eða söltunHarðfiskur og saltfiskur — þrautreynt
      Feitur fiskur (silungur, lax, síld)Söltun, svo reyking eða súrsunFitan þránar — þurrkun ein dugar illa
      KjötSöltun, svo reykingMagrir vöðvar í þunnum ræmum má þurrka
      BerSulta, saft eða þurrkun
      Kartöflur og rótargrænmetiKöld, dimm geymslaFrostlaust en svalt
      Kál og grænmetiGerjun í salti eða súrsun í ediki

      Það sem þarf að eiga: gróft salt í kílóavís (ódýrt og geymist endalaust), edik, sykur, hreinar krukkur með heilum lokum, snæri og net gegn flugum.

      ⚠ Varúð:

      • Heimaniðursuða á sýrulitlum mat (kjöt, fiskur, grænmeti, baunir) er eina aðferðin hér sem getur drepið: bótúlíngró lifa suðu af. Hún er aðeins örugg í þrýstiniðursuðupotti með þrýstimæli (pressure canner) eftir prófaðri uppskrift — venjulegur hraðsuðupottur dugar ekki, og ekki suða í opnum potti. Vatnsbað dugar aðeins fyrir súran mat (sultur, ávexti, súrsað í ediki) eftir prófaðri uppskrift. Vafi um aðferð eða geymslu: hentu — ekki smakka og ekki reyna að bjarga með suðu.
      • Hvítlaukur eða kryddjurtir í olíu við stofuhita er sama gildran í smærri mynd.
      • Þessar aðferðir lærast á friðartímum, með litlum skömmtum. Fyrsta tilraun í neyð er of seint — og of dýrt ef aflinn skemmist.
    12. Fjarskipti og merkjagjöf án nets

      Boð þurfa ekki net — þau þurfa áætlun. Sá sem veit hvar og hvenær á að hlusta, bíða eða skilja eftir skilaboð nær sambandi; sá sem ráfar um í leit að sambandi týnist.

      Það sem síminn getur þegar netið er farið

      1. 112 fer um önnur farsímanet ef þitt liggur niðri. Reyndu alltaf að hringja, líka þótt síminn sýni ekkert samband hjá þínu fjarskiptafélagi.
      2. Varaleiðir í 112: varanúmerið 599 0112 (venjulegt símtal — sendir ekki staðsetningu sjálfkrafa), SMS til 112 og 112-appið, sem sendir staðsetningu og opnar textaspjall við neyðarvörð.
      3. SMS kemst oft í gegn þegar símtöl og gögn gera það ekki. Stutt og skýrt: hver, hvar, ástand, hvað næst.
      4. Gervihnattaneyðarboð eru í sumum nýrri símum — athugaðu fyrirfram hvort þinn sími styður þau á Íslandi og lærðu hvernig þau eru ræst.
      5. Kort án nets og áttaviti í símanum virka án sambands — ef kortin voru sótt áður (A9).

      Útvarp — leiðin inn þegar annað bregst

      Rás 2 er neyðarrás RÚV. Hlustaðu á heila tímanum. Bílútvarpið telst með.

      Talstöðvar

      • Handstöðvar (PMR446) þurfa ekki leyfi og fást ódýrt. Drægnin er nokkur hundruð metrar í byggð, nokkrir kílómetrar á bersvæði. Heimilið — eða gatan — ákveður fyrirfram rás og hlustunartíma (t.d. fimm mínútur á heila tímanum) svo rafhlöðurnar endist.
      • VHF er fjarskiptakerfi sjófarenda; rás 16 er neyðar- og uppkallsrás. Notkun krefst réttinda nema í neyð.

      Skilaboð án tækja

      • Fastur staður: miði á útihurð og á samkomustað fjölskyldunnar. Alltaf fjögur atriði: hver, klukkan hvað, hvert fór ég, hvenær kem ég aftur.
      • Boðberi: sendu helst tvo saman og með skrifuð skilaboð — munnleg boð breytast á leiðinni.

      Að láta finna sig

      1. Vertu kyrr. Sá sem bíður á sama stað finnst; sá sem gengur af stað stækkar leitarsvæðið.
      2. Þrennt af hverju sem er = neyð: þrjú flaut, þrjú ljósblikk, þrjú hróp — hlé — endurtekið. SOS er þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.
      3. Flauta berst lengra en rödd og kostar enga orku. Hún á heima á lyklakippunni og í grab baginu.
      4. Sjáðu til þess að þú sjáist: skærlitað klæði, álteppi, endurskin. Stórt merki á jörðu (X eða SOS úr steinum, fötum eða troðnum snjó) sést úr lofti. Í myrkri: ljós sem blikkar.
      5. Þyrla eða flugvél: báðir handleggir upp (eins og Y) = já, ég þarf hjálp. Annar upp og hinn niður (eins og N) = nei, allt í lagi.

      ⚠ Prófaðu símann aldrei með því að hringja í 112 — til þess er prufunúmerið 1280, sem segir þér hvort síminn nær neyðarsímtali. Neyðarblys og neyðarmerki eru aðeins fyrir raunverulega neyð; falskt neyðarkall dregur björgunarfólk frá þeim sem þurfa það.

    13. Heilsa þegar hjálp er fjarri

      Það sem fellir fólk í langvarandi ástandi er sjaldnast dramatískt — það er vökvatap, sýkt sár, kuldi og lyf sem klárast. Allt fernt sést fyrir og flest má stöðva snemma.

      Vökvatap (niðurgangur, uppköst, hiti)

      1. Litlir sopar oft slá stór glös sjaldan út.
      2. Salt- og sykurblanda: 1 lítri af hreinu vatni + 6 sléttfullar teskeiðar af sykri + ½ sléttfull teskeið af salti. Hrært þar til uppleyst. Á að vera á bragðið ekki saltara en tár. Ný blanda daglega.
      3. Hættumerki: nánast ekkert þvag í 8 klst eða meira, mjög dökkt þvag, sljóleiki, svimi við að standa upp, sokkin augu. Hjá ungbörnum: þurr bleyja, grátur án tára, slappleiki. → 1700, eða 112 ef viðkomandi er sljór.

      Hiti

      • Hvíld, vökvi, léttur klæðnaður og hitalækkandi samkvæmt umbúðum. Skráðu mælingar.
      • Hættumerki → 112: hnakkastífleiki, útbrot sem hverfa ekki þegar glasi er þrýst á þau, ruglingur, öndunarerfiðleikar, krampi. Ungbarn yngra en þriggja mánaða með 38°C eða meira þarf læknismat strax — 1700, eða 112 ef barnið er slappt eða drekkur ekki.

      Sár og sýkingar

      1. Skolaðu ríkulega með hreinu vatni, fjarlægðu óhreinindi, hyldu með hreinu og skiptu daglega (C8).
      2. Djúp, óhrein eða bitin sár: ekki loka þeim með plástrum eða lími — hreinsa, hylja laust, leita hjálpar.
      3. Sýkingarmerki: vaxandi roði, hiti, bólga og verkur eftir fyrsta sólarhringinn, gröftur, rauð rák frá sárinu, hiti í kroppnum. Teiknaðu með penna utan um roðann — stækki hann út fyrir línuna þarf viðkomandi lækni, ekki á morgun heldur núna.
      4. Óhrein sár og stífkrampi: vittu hvenær þú fékkst síðast bólusetningu.

      Tognun og brot

      1. Kyrrsettu útliminn í þeirri stöðu sem veldur minnstum verk. Spelka (fjöl, upprúllað tímarit, göngustafur) sem nær yfir liðinn ofan og neðan við áverkann, bólstruð og bundin án þess að herða að.
      2. Kældu og hafðu hátt.
      3. Athugaðu neðan við áverkann reglulega: litur, hiti, tilfinning. Fölur, kaldur eða dofinn útlimur → 112.

      Lyf sem eru að klárast

      • Hafðu samband við 1700, heilsugæslu eða apótek áður en síðasta taflan er tekin. Í neyðarástandi eru til leiðir sem þú veist ekki um.
      • Hættu ekki skyndilega á lyfjum og skammtaðu þau ekki niður upp á eigin spýtur — sum lyf er hættulegt að stöðva. Þetta er ákvörðun sem heilbrigðisstarfsmaður tekur með þér.

      Dagbókin: hver, hvað, hvenær. Hiti, vökvi inn, þvag út, lyf gefin, breytingar. Á þriðja degi man enginn hvað gerðist á þeim fyrsta — og sá sem tekur við þarf einmitt það.

      ⚠ Þetta bíður aldrei, hvað sem ástandinu líður: öndunarerfiðleikar · brjóstverkur · merki um heilablóðfall · minnkandi meðvitund · blæðing sem stöðvast ekki · mikill kviðverkur · merki um alvarlega sýkingu · barnshafandi kona með blæðingu eða mikla verki. Þá er verkefnið ekki að meðhöndla heldur að koma boðum eða sjúklingi til hjálpar (C12, B7, B10).

    14. Úthald og hópurinn

      Birgðir duga í daga, búnaður í vikur — en það sem ræður úrslitum í langvarandi ástandi er hvort fólk sefur, borðar, talar saman og treystir hvert öðru. Úthald er skipulagt, ekki meðfætt.

      Eðlileg viðbrögð við óeðlilegum aðstæðum

      Svefnleysi, einbeitingarskortur, pirringur, kvíði, dofi, grátur upp úr þurru, höfuð- og vöðvaverkir. Þetta er ekki veikleiki heldur líkaminn að vinna. Flestir jafna sig með tíma, hvíld og félagsskap.

      Það sem heldur fólki gangandi

      1. Rútína: fótaferð, máltíðir og háttatími á föstum tímum — líka þegar ekkert kallar á það. Dagur með formi er dagur sem líður.
      2. Svefn er fyrsta auðlindin sem tapast og sú sem bitnar mest á dómgreindinni. Skiptist á vöktum ef vaka þarf; enginn vakir tvær nætur í röð.
      3. Verkefni: allir fá hlutverk — líka börn og þeir sem geta lítið. Aðgerðaleysi er verra en erfiði.
      4. Fréttaskammtar: hlustað á föstum tímum, slökkt á milli. Stöðugt fréttaflóð upplýsir ekki meira, það þreytir bara.
      5. Eitthvað annað: spil, bók, saga, söngur. Hlátur er ekki virðingarleysi við ástandið.
      6. Áfengi og róandi efni fresta líðaninni og taka dómgreindina með sér. Ekki tíminn. Þetta á ekki við um lyf sem læknir hefur ávísað — haltu þeim óbreyttum.

      Hópurinn — heimili, stigagangur, gata

      1. Stuttur fundur á dag: hvað vitum við, hvað vantar, hver gerir hvað. Fimm mínútur, á sama tíma.
      2. Skýr hlutverk: vatn, matur, upplýsingar, umönnun, eldsneyti. Skipt reglulega svo enginn brenni út.
      3. Opin skömmtun: allir vita hvað er til og hvernig því er skipt. Leynd um birgðir eyðileggur traust hraðar en skortur.
      4. Ágreiningur er leystur á fundinum, ekki í eldhúsinu. Sá sem er ósammála fær að segja það — svo er ákveðið og haldið áfram.
      5. Nágrannar margfalda getuna: einn á prímus, annar verkfæri, þriðji kann skyndihjálp. Hópur sem þekkist fyrir ástandið virkar í ástandinu — þess vegna eru neyðarvinir A-verkefni (A5).

      Að styðja annan — þrjú skref

      1. Horfa: er viðkomandi öruggur? Vantar hann eitthvað áþreifanlegt — vatn, teppi, lyf?
      2. Hlusta: vertu hjá honum og leyfðu honum að tala ef hann vill. Ekki þrýsta, ekki laga, ekki segja „þetta verður allt í lagi“ ef þú veist það ekki.
      3. Tengja: hjálpaðu honum að ná í sitt fólk, upplýsingar og þá aðstoð sem er í boði.

      Börn: þau lesa ástandið af andlitum fullorðinna. Ró, rútína, nánd, sannleikur við hæfi og leyfi til að leika sér. Afturför í hegðun — væta rúmið, vilja ekki sofa ein — er eðlileg og gengur yfir.

      ⚠ Leitaðu hjálpar þegar: einhver talar um að vilja ekki lifa, hættir að borða eða sofa dögum saman, missir tengsl við raunveruleikann eða getur ekki sinnt sér eða börnum sínum. Hjálparsími Rauða krossins 1717 (allan sólarhringinn), Píeta 1799, heilsugæslan 1700 — og 112 ef hætta er bráð.

    15. Verkfæri, hnútar og viðgerðir

      Í langvarandi ástandi kemur enginn iðnaðarmaður. Markmiðið er ekki að gera við húsið — það er að stöðva tjónið þar til hægt er að gera við það.

      Sex hlutir sem leysa flest

      1. Hnífur — beittur, og brýni með.
      2. Fjölnota töng eða töng og skrúfjárn.
      3. Viðgerðarlímband — þéttir, festir, spelkar, lokar.
      4. Band: 10–20 metrar af sterku snæri, og nokkrir strekkiborðar.
      5. Plastdúkur eða presenning — í stað brotinnar rúðu, yfir lekt þak, sem skjól eða til vatnssöfnunar.
      6. Sög eða öxi, og hamar með nöglum.

      Vinnuhanskar og hlífðargleraugu fylgja — meiðsl við hreinsun og viðgerðir eru algengustu slysin eftir hamfarir.

      Fjórir hnútar sem duga

      • Pelastikk — lykkja sem herðist ekki að. Til að draga, festa eða bjarga.
      • Hestahnútur — band fest fljótt við staur, grein eða handrið.
      • Flagghnútur — tvö bönd hnýtt saman, líka misgild.
      • Strekkihnútur — rennilykkja sem heldur strekkingu; fyrir presenningu, tjald og farm.

      Æfðu þá þar til þú hnýtir þá með vettlinga á höndum. Hnútur sem þarf að rifja upp er hnútur sem þú kannt ekki.

      Bráðaviðgerðir á húsi

      1. Brotin rúða: hanskar, hreinsaðu laus brot, límdu plastdúk eða negldu plötu yfir innan frá ef veðrið er vont. Teppi yfir til einangrunar.
      2. Lekt þak: inni fyrst — fata undir lekann, færðu verðmæti frá og sláðu út rafmagni í rýminu ef vatn er nálægt ljósum eða tenglum. Presenning yfir þakið aðeins þegar veðrið er gengið niður, í björtu og ekki einn: strekkt upp yfir mæni og fest með listum eða böndum — ekki bara steinum. Farðu aldrei upp á skemmt þak eða þak í roki.
      3. Lögn sem lekur: lokaðu fyrir inntakið (A11). Lítið gat: gúmmíbót og hosuklemma eða þétt vafið límband heldur til bráðabirgða.
      4. Hurð eða gluggi sem lokast ekki: festu með skrúfum eða böndum og þéttu með teppi. Markmiðið er vindþétt, ekki fallegt.

      Að verja lagnir í frosti (hús sem er að kólna)

      1. Meðan vatn rennur enn og nóg er af því: örmjó buna úr krönum við útveggi dregur úr frosthættu — en tryggir ekkert. Ekki ef veitan biður um vatnssparnað.
      2. Ef húsið stefnir undir frostmark og enginn hiti er í sjónmáli: lokaðu fyrir inntak og tæmdu kerfið — opnaðu alla krana, hæsta fyrst, og tappaðu af þeim lægsta.
      3. Helltu frostlegi sem ætlaður er lagnakerfum (própýlenglýkól) í vatnslása — vaska, niðurföll, salerni — svo þeir springi ekki. Aldrei kælivökva af bíl — hann er eitraður.
      4. Þegar hitinn kemur aftur: opnaðu varlega fyrir og fylgstu með leka — frostsprungur koma fyrst í ljós þegar þiðnar.

      Rafmagn og eldsneyti

      • Þú mátt slá út og inn öryggjum og lekaliða. Allt annað í töflunni er fyrir rafvirkja.
      • Slitnar eða lafandi raflínur: haltu þig langt frá og hringdu í 112. Gerðu alltaf ráð fyrir að þær séu spennuhafa.
      • Eldsneyti aðeins í viðurkenndum brúsum, geymt úti eða í loftræstum skúr — aldrei í íbúð. Bensín eldist á nokkrum mánuðum.

      ⚠ Stigar, þök, keðjusagir og þreyta eru verri blanda en óveðrið sjálft. Vinndu í björtu, ekki einn, og hættu áður en þú þreytist. Viðgerð sem getur beðið til morguns á að bíða til morguns.

    Heim

    Neyðarnúmer

    Virk símanúmer á Íslandi. Skrifaðu þau líka á blað — síminn er ekki eina afritið.

    Útvarp: Neyðarrás RÚV er Rás 2.

    Heim

    Mín staða

    Hvar þú stendur og hvað er næst. Þrepin mæla viðbúnað heimilisins; færnin þín er talin sér.

    Þrepið mitt

    Þrepin

      Þrep byggja á sjálfsmati og veita yfirsýn, ekki réttindi. Menntun, námskeið, færni og réttindi eru skráð sem færnimerki og hækka ekki þrep.

      Uppsetning

        Skrefin má klára í hvaða röð sem er. Uppsetning er ekki þrep og hefur engin áhrif á þrepastöðu.

        Heim

        Efnið á pappír

        Sími getur tæmst, týnst eða blotnað. Útprent í möppu virkar alltaf.

        Prentaðu báðum megin til að spara pappír. Geymdu möppuna með grab bag eða viðlagakassanum.

        Heim

        Heimildir

        Á hverju er efnið byggt?

        Efnið í Óhult er byggt á opinberum leiðbeiningum íslenskra stjórnvalda og viðbragðsaðila, og á viðurkenndum erlendum leiðbeiningum þar sem íslenskar skortir. Textinn er endursagður og lagaður að íslenskum aðstæðum — hann er ekki bein þýðing og útgefendurnir hér að neðan bera ekki ábyrgð á honum. Þar sem fyrirmæli stjórnvalda í raunverulegu ástandi stangast á við það sem hér stendur gilda fyrirmælin, alltaf.

        Óhult kemur ekki í stað skyndihjálparnámskeiðs, læknisráðgjafar eða fyrirmæla viðbragðsaðila.

        Íslenskar heimildir

        • Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. (2026). Verum viðbúin [bæklingur]. verumvidbuin.is
        • Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. (e.d.). Forvarnir og fræðsla: Heimilisáætlun, rýmingar og náttúruvá. almannavarnir.is
        • Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir. (2020). Landsáætlun um heimsfaraldur (3. útgáfa). almannavarnir.is
        • Eldvarnabandalagið. (e.d.). Eldvarnir – handbók heimilisins.
        • Embætti landlæknis – sóttvarnalæknir. (2020). Leiðbeiningar fyrir almenning varðandi sóttkví og einangrun í heimahúsi. island.is/s/landlaeknir
        • Fjarskiptastofa. (e.d.). Fimm mínútur sem geta skipt sköpum í neyð. island.is/s/fjarskiptastofa
        • Fjarskiptastofa og Neyðarlínan. (2026, 23. júlí). Neyðarlínan kynnir varanúmerið 599 0112 ef ekki næst í 112. island.is/s/fjarskiptastofa
        • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. (e.d.). Leiðbeiningar um brunavarnir í frístundabyggð. hms.is
        • Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. (e.d.). Vertu eldklár: Brunavarnir heimilisins. vertueldklar.is
        • Lög um Náttúruhamfaratryggingu Íslands nr. 55/1992.
        • Matvælastofnun. (e.d.). Leiðbeiningar: Merking geymsluþols matvæla. mast.is
        • Náttúruhamfaratrygging Íslands. (e.d.). Tjón af völdum náttúruhamfara. island.is/tjon-af-voldum-natturuhamfara
        • Neyðarlínan. (e.d.). 112.is og 112-appið. 112.is
        • Rauði krossinn á Íslandi. (e.d.). 3 dagar – Ertu klár? Viðlagakassi, heimilisáætlun og andlegur undirbúningur. 3dagar.is
        • Rauði krossinn á Íslandi. (e.d.). Skyndihjálp. raudikrossinn.is
        • Reglugerð um eldvarnir og eldvarnaeftirlit nr. 723/2017.
        • Slysavarnafélagið Landsbjörg. (e.d.). Safetravel: Ferðaáætlun og öryggi á ferðalögum. safetravel.is
        • Sóttvarnalæknir og Geislavarnir ríkisins. (2022, 4. mars). Ekki ástæða fyrir heimili að eiga joðtöflur vegna ástandsins í Úkraínu. island.is
        • Stýrihópur um forvarnaaðgerðir gegn gróðureldum á Íslandi. (e.d.). Gróðureldar: Forvarnir og fyrstu viðbrögð. grodureldar.is
        • Veðurstofa Íslands. (e.d.). Viðvaranir, ofanflóð, jarðskjálftar og eldgos. vedur.is
        • Vegagerðin. (e.d.). Færð og veður. umferdin.is

        Erlendar heimildir

        • Centers for Disease Control and Prevention. (e.d.). Making water safe in an emergency. cdc.gov/water-emergency
        • Centers for Disease Control and Prevention. (e.d.). Keep food safe after a disaster or emergency; Discarding food after a power outage. cdc.gov
        • Centers for Disease Control and Prevention. (e.d.). Home-canned foods: Protect yourself from botulism. cdc.gov/botulism
        • Centers for Disease Control and Prevention. (e.d.). Prevent carbon monoxide poisoning: Generator safety. cdc.gov
        • The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints. (e.d.). Longer-term food storage [mat á geymsluþoli þurrvöru, byggt á rannsóknum Brigham Young University]. churchofjesuschrist.org
        • European Commission. (2025). European Preparedness Union Strategy.
        • European Commission. (2026). Guidelines on reaching a population self-sufficiency of a minimum of 72 hours (Action 28).
        • European Resuscitation Council. (2021, 2025). ERC Guidelines: First aid; Basic life support. cprguidelines.eu
        • Federal Emergency Management Agency. (e.d.). Ready.gov. ready.gov
        • Myndigheten för civilt försvar [áður Myndigheten för samhällsskydd och beredskap, MSB]. (2024). Om krisen eller kriget kommer. mcf.se
        • National Center for Home Food Preservation. (e.d.). Guidelines for home canning, drying, curing and smoking. nchfp.uga.edu
        • National Weather Service. (e.d.). Turn around, don't drown: Flood safety. weather.gov/safety/flood
        • Sphere Association. (2018). The Sphere handbook: Humanitarian charter and minimum standards in humanitarian response (4. útgáfa). spherestandards.org
        • U.S. Department of Agriculture, Food Safety and Inspection Service. (e.d.). Shelf-stable food safety; Food product dating. fsis.usda.gov
        • U.S. Environmental Protection Agency. (e.d.). Emergency disinfection of drinking water. epa.gov
        • Utah State University Extension. (e.d.). Food storage for emergencies. extension.usu.edu
        • World Health Organization. (2011). Psychological first aid: Guide for field workers. who.int
        • World Health Organization og UNICEF. (e.d.). Oral rehydration salts [leiðbeiningar um salt- og sykurlausn]. who.int

        Sástu villu eða úrelta ráðleggingu? Sendu okkur línu á kjc@kjc.is. Efnið er yfirfarið reglulega og leiðrétt þegar leiðbeiningar stjórnvalda breytast.

        Síðast yfirfarið: nóvember 2026.

        Heim

        Persónuvernd

        Persónuvernd og meðhöndlun upplýsinga · Útgáfa 1

        Stutta útgáfan

        • Þú getur notað allt efni Óhult án þess að gefa upp neitt um þig. Enginn aðgangur, ekkert nafn, ekkert netfang.
        • Gátlistinn þinn og „Mitt plan“ eru vistuð í tækinu þínu — ekki hjá okkur — nema þú stofnir aðgang og veljir sjálfur að samstilla.
        • Við seljum aldrei upplýsingar um þig og birtum engar auglýsingar.
        • Þú ræður hverjir sjá hvað. Deiling með vinum er alltaf þitt val, fyrir hvern vin fyrir sig, og þú getur tekið hana til baka.
        • Staðsetning er aðeins unnin ef þú kveikir á henni — og nákvæm staðsetning er læst nema við skilyrði sem þú þekkir fyrirfram.
        • Við mælum notkun í heild til að sjá hvað nýtist og hvað ekki. Við mælum ekki hvað þú skrifar í planið þitt.
        • Þú getur eytt öllu hvenær sem er.

        1. Hver ber ábyrgð

        Ábyrgðaraðili vinnslunnar er KJC ehf., kt. 640419-0910, Pósthólf 1, 602 Akureyri.
        Fyrirspurnir um persónuvernd: kjc@kjc.is

        Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almenna persónuverndarreglugerðin (ESB) 2016/679.

        2. Hvaða upplýsingar, hvers vegna og á hvaða grundvelli

        2.1 Án aðgangs

        UpplýsingarHvarTilgangur
        Gátlisti, þrep og „Mitt plan“Aðeins í tækinu þínuAð appið virki — líka án nets
        Efni appsins (kaflar A, B, C)Afrit í tækinu þínuAð efnið opnist án nets
        Samantekt eða PDF sem þú býrð tilVerður til í tækinu; þú ræður hvert þú sendir hanaAð þú getir deilt planinu sjálfur

        Við sjáum ekkert af þessu. Ef þú hreinsar gögn vafrans eða fjarlægir appið hverfa þessar upplýsingar — við eigum ekkert afrit.

        2.2 Notkunarmælingar

        UpplýsingarTilgangurGrundvöllur
        Fjöldi heimsókna, hvaða kaflar eru opnaðir, hvort appið er sett á heimaskjá, gerð tækis og vafra, gróft land eða landsvæðiAð meta hvað nýtist, forgangsraða endurbótum og ákveða næstu skrefLögmætir hagsmunir okkar af því að þróa þjónustuna

        Mælingarnar eru teknar saman í heild og eru ekki notaðar til að fylgjast með einstaklingum. Við mælum aldrei innihald „Mitt plan“, hvað þú hakar við í gátlistanum eða hvar þú ert.

        Tólið notar ekki vafrakökur.

        2.3 Aðgangur ⏳ tekur gildi þegar aðgangar opna

        UpplýsingarTilgangurGrundvöllur
        NetfangInnskráning, staðfesting, endurheimt aðgangs, nauðsynlegar tilkynningarSamningur við þig
        Lykilorð (geymt tætt — við getum ekki lesið það)InnskráningSamningur
        Gátlistastaða og þrepAfrit, fleiri tæki, áminningar um endurstaðfestinguSamningur
        „Mitt plan“ — aðeins ef þú kveikir á samstillinguAfrit og fleiri tækiSamþykki þitt
        Áminningar í tölvupóstiAð minna á að yfirfara birgðir og búnaðSamningur; þú getur slökkt á þeim

        Við biðjum ekki um kennitölu, heimilisfang eða símanúmer.

        Um „Mitt plan“ sérstaklega: planið er frjáls texti og þú ræður hvað þú skráir. Það getur orðið viðkvæmt — til dæmis ef þú skráir lyf, heilsufar eða hvar verðmæti eru geymd. Skráðu ekki meira en þú þarft, og mundu að samstilling er valfrjáls: planið virkar jafn vel í tækinu einu.

        2.4 Hringurinn — deiling með vinum ⏳ tekur gildi þegar deiling opnar

        UpplýsingarHverjir sjáGrundvöllur
        Að þið séuð tengd í hringÞú og viðkomandi vinurSamþykki ykkar beggja
        Þrep þitt og staða („þarf að staðfesta“ o.þ.h.)Þeir vinir sem þú velurSamþykki þitt, fyrir hvern vin
        Sundurliðaður búnaðarlisti eða planEnginn — nema þú veljir það sérstaklegaSamþykki þitt

        Þrepið er öryggisupplýsing; birgðalistinn er verðmætalisti. Þess vegna er sundurliðun aldrei sjálfgefin. Þú getur afturkallað deilingu eða fjarlægt vin hvenær sem er og þá hættir viðkomandi að sjá stöðu þína.

        2.5 Staðsetning ⏳ tekur gildi þegar staðsetningarlagið opnar

        Staðsetning er aðeins unnin ef þú kveikir á henni. Hún er í tveimur lögum:

        LagNákvæmniHverjir sjáHvenær
        Gróf staðsetningUm ±10 kmHringurinn þinnAlltaf, meðan kveikt er á staðsetningu
        Nákvæm staðsetningSíðasta þekkta staðsetning tækisinsHringurinn þinn — aðeins þegar hún er opnuðÞegar (a) þú opnar hana sjálfur, (b) þú lýsir sjálfur yfir neyð, eða (c) þrír vinir sem þú hefur valið sem gæslumenn samþykkja að opna hana
        • Grundvöllur: samþykki þitt. Þú getur slökkt á staðsetningu hvenær sem er.
        • Þú velur gæslumennina og getur skipt þeim út. Þú færð tilkynningu í hvert sinn sem nákvæm staðsetning er opnuð og sérð hver gerði það.
        • Við geymum aðeins síðustu þekktu staðsetningu, ekki ferðasögu.
        • Staðsetningin er dulkóðuð þannig að aðeins hringurinn þinn getur lesið hana — við getum það ekki.
        • Óhult er ekki neyðarþjónusta. Staðsetningin fer ekki til 112 eða viðbragðsaðila. Í neyð hringir þú í 112.

        2.6 Greiðslur ⏳ tekur gildi þegar greiðslur opna

        UpplýsingarHver vinnurGrundvöllur
        KortaupplýsingarGreiðslugáttin — við sjáum hvorki né geymum kortanúmerSamningur
        Staðfesting greiðslu, fjárhæð, dagsetning, netfangViðSamningur og lagaskylda (bókhaldslög)

        2.7 Þegar þú hefur samband

        Ef þú sendir okkur tölvupóst geymum við hann og netfangið þitt eins lengi og þarf til að svara þér og fylgja málinu eftir. Grundvöllur: lögmætir hagsmunir af því að svara erindum.

        3. Hverjir fá upplýsingarnar

        Við deilum upplýsingum aðeins með þeim sem vinna þær fyrir okkur samkvæmt vinnslusamningi, og aðeins að því marki sem þarf:

        Við seljum ekki persónuupplýsingar, leigjum þær ekki og notum þær ekki til auglýsinga. Við afhendum yfirvöldum aðeins upplýsingar ef lög eða dómsúrskurður skylda okkur til þess.

        4. Hvar upplýsingarnar eru geymdar

        Upplýsingar sem við geymum eru hýstar á Íslandi. Ef einhver vinnsluaðili vinnur upplýsingar utan EES er það aðeins gert á grundvelli viðurkenndra verndarráðstafana, svo sem staðlaðra samningsskilmála.

        5. Hve lengi

        UpplýsingarVarðveislutími
        Gögn í tækinu þínuÞar til þú eyðir þeim eða hreinsar vafragögn
        Aðgangur og það sem honum fylgirMeðan aðgangurinn er til. Eytt innan 30 daga frá því að þú lokar honum
        Óvirkir aðgangarEytt eftir 24 mánuði án innskráningar — við látum þig vita með tölvupósti áður
        StaðsetningAðeins síðasta þekkta staðsetning; eytt um leið og þú slekkur á staðsetningu
        Greiðslu- og bókhaldsgögnSjö ár, samkvæmt lögum um bókhald
        NotkunarmælingarGeymdar samanteknar, án tengingar við einstaklinga
        TölvupóstsamskiptiAllt að tvö ár frá síðustu samskiptum

        6. Öryggi

        • Öll samskipti við þjónustuna eru dulkóðuð (HTTPS).
        • Lykilorð eru geymd tætt og söltuð — enginn hjá okkur getur lesið þau.
        • Aðgangur að kerfum er takmarkaður við þá sem þurfa hann vegna reksturs.
        • Verði öryggisbrestur sem líklegt er að hafi áhrif á þig látum við þig og Persónuvernd vita án ástæðulausrar tafar.

        Ekkert kerfi er fullkomlega öruggt. Þess vegna er grunnhönnun Óhult sú að það viðkvæmasta — planið þitt — þurfi aldrei að fara úr tækinu.

        7. Réttindi þín

        Þú átt rétt á að:

        • fá að vita hvaða upplýsingar við vinnum um þig og fá afrit af þeim
        • láta leiðrétta rangar upplýsingar
        • láta eyða upplýsingum um þig
        • fá upplýsingarnar þínar afhentar á tölvutæku formi
        • andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, þar á meðal notkunarmælingum
        • afturkalla samþykki hvenær sem er — það hefur ekki áhrif á vinnslu sem þegar hefur farið fram

        Flest af þessu gerir þú sjálfur í stillingum appsins. Annars: sendu línu á kjc@kjc.is. Við svörum innan mánaðar.

        Teljir þú að við vinnum upplýsingar um þig í andstöðu við lög getur þú sent kvörtun til Persónuverndar — personuvernd.is.

        8. Börn

        Efni Óhult er opið öllum og hentar vel til að lesa með börnum. Aðgangur er ætlaður þeim sem eru orðnir 13 ára. Við söfnum ekki vísvitandi upplýsingum um yngri börn; verðum við vör við slíkt eyðum við þeim.

        9. Geymsla í tækinu og vafrakökur

        Óhult vistar gögn í tækinu þínu til þess að virka án nets: afrit af efninu, gátlistann, þrepin og planið. Þetta er nauðsynlegt til að veita þjónustuna og krefst ekki samþykkis. Þessi gögn fara ekki til okkar nema þú stofnir aðgang og samstillir.

        Við notum engar vafrakökur til mælinga eða auglýsinga.

        10. Breytingar

        Við uppfærum þessa stefnu þegar þjónustan breytist. Verulegar breytingar — til dæmis ný tegund vinnslu — tilkynnum við í appinu og, ef þú ert með aðgang, í tölvupósti áður en þær taka gildi. Eldri útgáfur eru aðgengilegar ef óskað er.

        Heim

        Skilmálar

        Útgáfa 1

        Stutta útgáfan

        • Óhult er fræðsla og skipulagstól, ekki neyðarþjónusta. Í neyð: 112.
        • Fyrirmæli stjórnvalda og viðbragðsaðila ganga alltaf framar því sem stendur í appinu.
        • Efnið er frítt og verður það áfram. Greiðsla kaupir þjónustu — aldrei aðgang að efni.
        • Þú berð ábyrgð á eigin ákvörðunum. Við berum ábyrgð á að vanda efnið og leiðrétta það sem reynist rangt.

        1. Um þjónustuna

        Óhult er rekið af KJC ehf., kt. 640419-0910, Pósthólf 1, 602 Akureyri („við“). Með því að nota Óhult samþykkir þú þessa skilmála. Sért þú ósammála þeim biðjum við þig að nota ekki þjónustuna.

        Fyrirspurnir: kjc@kjc.is

        2. Efnið er fræðsla — ekki ráðgjöf

        1. Efni Óhult er almenn fræðsla um viðbúnað og viðbrögð, byggð á opinberum leiðbeiningum (sjá „Heimildir“). Það er ekki sniðið að þínum aðstæðum og kemur ekki í stað ráðgjafar læknis, viðbragðsaðila eða annarra fagaðila.
        2. Í raunverulegu ástandi gilda fyrirmæli Almannavarna, lögreglu, Neyðarlínu og annarra viðbragðsaðila — alltaf. Stangist þau á við það sem stendur í appinu fylgir þú fyrirmælunum.
        3. Kaflar um skyndihjálp og heilsu eru upprifjun, ekki kennsla. Þeir koma ekki í stað skyndihjálparnámskeiðs.
        4. Kaflar um kunnáttu til langs tíma — eld, vatnshreinsun, matvælaöflun, geymslu matar, veiði, viðgerðir — lýsa athöfnum sem fela í sér áhættu. Þú berð ábyrgð á að meta eigin færni og aðstæður og á að fara að lögum.
        5. Leiðbeiningar breytast. Við yfirförum efnið reglulega og sýnum hvenær það var síðast yfirfarið, en getum ekki ábyrgst að hvert atriði sé rétt og uppfært á hverjum tíma.

        3. Óhult er ekki neyðarþjónusta

        1. Óhult hefur ekki samband við 112 eða viðbragðsaðila fyrir þína hönd og sendir þeim engar upplýsingar.
        2. Enginn hjá okkur vaktar appið, hringinn þinn eða staðsetningu.
        3. Treystu ekki á eitt tæki. Rafhlöður tæmast, símar týnast og vafrar hreinsa gögn. Settu Óhult á heimaskjáinn, prentaðu planið þitt og eigðu útprentaðan símanúmeralista.

        4. Þrep og gátlistar

        Þrepin byggja á því sem þú skráir sjálfur. Þau eru yfirsýn fyrir þig — ekki vottun, mat eða trygging fyrir því að þú eða heimili þitt sé öruggt. Þrep veita engin réttindi.

        5. Aðgangur ⏳ tekur gildi þegar aðgangar opna

        1. Aðgangur er ókeypis og ætlaður þeim sem eru orðnir 13 ára.
        2. Þú berð ábyrgð á að gæta innskráningarupplýsinga þinna og á því sem gert er á aðganginum.
        3. Þú getur lokað aðganginum hvenær sem er. Þá eyðum við gögnum þínum eins og lýst er í persónuverndarstefnunni. Gögn í tækinu þínu eru þín og haldast þar.
        4. Við megum loka aðgangi sem er misnotaður (sjá 8. gr.), að undangenginni viðvörun nema brotið sé alvarlegt.

        6. Hringurinn og staðsetning ⏳ tekur gildi þegar deiling opnar

        1. Þú ræður hverjum þú býður í hringinn þinn og hvað hver og einn sér. Bjóddu aðeins fólki sem þú treystir.
        2. Þú mátt ekki bæta manneskju í hring eða deila upplýsingum um hana án samþykkis hennar.
        3. Upplýsingar sem þú sérð um aðra í hringnum eru trúnaðarmál. Þú mátt ekki nota þær í öðrum tilgangi en þeim sem hringurinn er til fyrir — að líta hvert til annars.
        4. Veljir þú gæslumenn samþykkir þú að þrír þeirra geti í sameiningu opnað nákvæma staðsetningu þína. Þú getur skipt um gæslumenn eða slökkt á staðsetningu hvenær sem er.
        5. Staða vina getur verið úrelt, einkum án nets. Appið sýnir hvenær hún var síðast uppfærð. Staðsetning er aðeins eins nákvæm og tækið og aðstæður leyfa.
        6. Það er óheimilt að nota hringinn eða staðsetningarlagið til að fylgjast með fólki gegn vilja þess.

        7. Greiðslur ⏳ tekur gildi þegar greiðslur opna

        1. Efnið er og verður frítt: allir kaflar, gátlistinn, planið og öll skilyrði þrepa. Greiðsla kaupir þjónustulag — fleiri vini í hringnum, skráningu og áminningar fyrir efri þrep og yfirsýn yfir hringinn.
        2. Áskriftin endurnýjast ekki sjálfkrafa; við minnum þig á áður en hún rennur út.
        3. Renni áskrift út heldur þú aðganginum og öllum gögnum þínum. Vinir umfram einn og virkni efri þrepa leggjast í dvala þar til endurnýjað er — engu er eytt.
        4. Réttur til að falla frá kaupum: þú getur fallið frá kaupunum innan 14 daga og fengið endurgreitt, samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga.
        5. Verðbreytingar gilda frá næstu endurnýjun og eru tilkynntar með minnst 30 daga fyrirvara.

        8. Notkun sem er ekki leyfð

        Þú mátt ekki:

        • nota Óhult til að fylgjast með, áreita eða skaða aðra
        • reyna að komast yfir gögn annarra eða trufla rekstur þjónustunnar
        • þykjast vera annar en þú ert
        • afrita efnið í heild og endurbirta það eða selja (sjá 9. gr.)

        9. Hugverk og deiling

        1. Texti, uppsetning, útlit og vörumerkið Óhult eru eign KJC ehf.
        2. Þú mátt og ert hvattur til að deila: senda hlekki á kafla, prenta efni til eigin nota og fyrir heimilið, og nota það í fræðslu án endurgjalds — svo fremi að Óhult sé getið.
        3. Endurbirting efnis í heild, sala þess eða notkun í hagnaðarskyni er óheimil án skriflegs leyfis.
        4. Planið þitt, gátlistinn og annað sem þú skráir er þitt. Við eignumst engan rétt á því.
        5. Heimildir sem efnið byggir á eru eign útgefenda sinna. Þeir bera ekki ábyrgð á endursögn okkar.

        10. Rekstur, breytingar og lok þjónustu

        1. Við leitumst við að þjónustan sé alltaf aðgengileg en ábyrgjumst ekki samfelldan rekstur. Þess vegna er appið hannað til að virka án nets og án okkar.
        2. Við megum breyta þjónustunni og þessum skilmálum. Verulegar breytingar eru tilkynntar í appinu og, sért þú með aðgang, í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. Haldir þú áfram að nota þjónustuna eftir það telst þú hafa samþykkt þær.
        3. Ákveðum við að hætta rekstri látum við vita með minnst 90 daga fyrirvara, gefum þér kost á að sækja gögnin þín og endurgreiðum ónotaðan hluta árgjalds.

        11. Ábyrgð

        1. Þjónustan er veitt eins og hún er. Að því marki sem lög leyfa berum við ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að efni var notað, misskilið eða reyndist úrelt, að appið var óaðgengilegt, að gögn glötuðust úr tæki, eða að upplýsingar um stöðu eða staðsetningu vina voru rangar eða úreltar.
        2. Ábyrgð okkar takmarkast í öllum tilvikum við þá fjárhæð sem þú hefur greitt okkur síðustu tólf mánuði.
        3. Ekkert í þessum skilmálum skerðir réttindi sem þú átt samkvæmt ófrávíkjanlegum lögum, þar á meðal neytendalöggjöf, né takmarkar ábyrgð vegna ásetnings eða stórfellds gáleysis.

        12. Lög og ágreiningur

        Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann með þér beint — sendu línu á kjc@kjc.is. Neytendur geta leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Dómsmál skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

        13. Tengd skjöl

        Heim

        Um Óhult

        Þinn leiðbeinandi í gegnum óvissu

        Óhult er íslenskt viðbúnaðarapp. Það hjálpar þér að undirbúa heimilið fyrir röskun — rafmagnsleysi, óveður, náttúruvá eða rof á grunnþjónustu — og segir þér skref fyrir skref hvað á að gera þegar eitthvað gerist. Það virkar án nets, því þá þarftu mest á því að halda.

        Þrír hlutar

        HlutiHvaðHvenær
        A · UndirbúningurÞað sem þú gerir í rólegheitum: birgðir, áætlun, búnaðurNúna
        B · ViðbrögðHvað á að gera fyrstu mínúturnar, fyrstu klukkustundina og svo áframÞegar eitthvað gerist
        C · KunnáttaVatn, hiti, matur, hreinlæti, fjarskipti — þegar ástandið dregstÞegar dagarnir verða fleiri en þrír

        Það sem við lofum

        1. Efnið er frítt og verður það. Enginn á að þurfa að borga til að vita hvað á að gera í neyð.
        2. Ró, ekki hræðsla. Viðbúnaður snýst ekki um að búast við hinu versta heldur um að vera viðbúin.
        3. Opinberar leiðbeiningar fyrst. Efnið byggir á viðmiðum Almannavarna, Rauða krossins og annarra viðbragðsaðila — sjá „Heimildir“. Fyrirmæli stjórnvalda ganga alltaf framar appinu.
        4. Gögnin þín eru þín. Planið þitt er vistað í tækinu þínu. Við seljum engar upplýsingar og birtum engar auglýsingar — sjá „Persónuvernd“.
        5. Virkar þegar annað virkar ekki. Án nets, án aðgangs, án okkar.

        Hvernig efnið er unnið

        Hver kafli er skrifaður út frá opinberum leiðbeiningum, lagaður að íslenskum aðstæðum og yfirfarinn áður en hann fer í appið. Tölur og viðmið eru rakin til heimilda sem eru taldar upp á heimildasíðunni.

        Efnið er yfirfarið reglulega og þegar leiðbeiningar stjórnvalda breytast. Neðst á hverri síðu sést hvenær það var síðast yfirfarið.

        Hver stendur að baki

        Óhult er rekið af KJC ehf., kt. 640419-0910, Pósthólf 1, 602 Akureyri.

        Óhult er sjálfstætt verkefni. Það er ekki á vegum Almannavarna, Rauða krossins eða annarra stofnana sem vísað er til, og þær bera ekki ábyrgð á efninu.

        Hafðu samband

        Ábendingar, leiðréttingar og hugmyndir: kjc@kjc.is

        Sástu villu eða ráðleggingu sem er orðin úrelt? Láttu okkur vita — það er mikilvægasta ábendingin sem við fáum.